SU_01
Heiðdís Helgadóttir Án titils, Styttir upp, 2022 olía og olíupastel á striga 70 x 80 cm 180.000 kr SELD Á sýningunni STYTTIR UPP ber að líta olíumálverk sem Heiðdís hefur unnið að síðastliðin fjögur ár. Þetta er hennar fyrsta sýning. Sorg, vonbrigði og tilfallandi geðsveiflur eru hluti af eðlilegri líðan mannsins. Dapurleikinn varir ýmist stutt eða lengi, stundum of lengi. Hegðun hugans voru Heiðdísi hugleikin við vinnslu verkanna og hvernig hann á það til að koma aftan að manni með látum þegar maður á síst von á því. Birtan og blæbrigðin í verkunum er áminning um það að vonir glæðast, vorsólin ylur vetrarhríð og blómin birtast á ný, um leið og það styttir upp. Heiðdís Helgadóttir (f. 1984) nam listfræði í HÍ áður en hún útskrifaðist með BA gráðu í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands. Hún vinnur aðallega með teikningar gerðar með bleki og vatnslitum sem hún selur í eftirprentum. Heiðdís hefur rekið vinnustofu sína og verslun ásamt Listasmáskólanum sem hún stofnaði til þess að kenna ungmennum myndlist yfir sumartímann í Hafnarfirði.
Variants (1)
- Default Title — 320000.00 ISK — Out of stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.