Macramé vegghengi / á Hellu / 11. október
Verið velkomin á macramé vegghengja námskeið í Safnaðarheimilinu á Hellu, Dynskálum 8, sunnudaginn 11. október kl. 13:00-15:30. Öll velkomin, bæði þau sem þekkja macramé og þau sem eru að heyra um það í fyrsta sinn. Kennari er Hera Sigðurardóttir Þátttakendur læra helstu grunnhnútana í macramé og hnýta sitt eigð hengi í hugrekki og flæði. Allur efniviður er innifalinn í skráningargjaldi og þátttakendur fara heim með sitt eigið vegghengi. Verðið er 14.900 kr. Sköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín. Heilandi samverustund þar sem við fræðumst um það hvaðan macramé kemur, spjöllum um heilunarmátt handavinnunnar og lærum undirstöðu hnúta í macramé svo hægt sé að byrja að skapa, flæða og gera þitt eigið verk, það sem hugurinn, hjartað og hendurnar girnast. Afbókunarskilmálar á námskeið Ef afbókað er með meira en tveggja sólarhringa fyrirvara fæst skráningagjaldið endurgreitt. Ef afbókað er innan eins sólarhrings fæst skráningagjaldið ekki endurgreitt. Alltaf velkomið að hafa samband og athuga hvort önnur dagsetning henti sé þess óskað.
Variants (1)
- Default Title — 14900.00 ISK — Out of stock
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.