VanRaam Thuja

VanRaam Thuja

Brand: Mobility.is
SKU: VA031
1599990.00 ISK In stock Buy at Merchant

Thuja er þægilegt og vandað þríhjól frá VanRaam fyrir fullorðna. Hjólið er með tvö hjól að framan sem veitir mikinn stöðuleika og framúrskarandi aksturseiginleika hjólið er með rafmótor sem gerir hjólaferðirnar ennþá skemmtilegri. Milli framhjólanna er hagnýtt geymslurými fullkomið fyrir innkaupapoka, hjálm eða nánast hvað sem er. Í boði er að fá hundakörfu fyrir geymslurýmið. Sjálfvirk lýsing kviknar um leið og þú virkjar rafmagnsaðstoðina. Tvö framhjól gera það líka auðvelt að meta breidd hjólsins í akstri. Drægni með staðlaðri rafhlöðu er frá 40-70km hámarkshraði hjólsins er 20km/klst. Thuja er ætlað fyrir notendur sem eru með innanfótarmál frá 79cm til 98cm Burðargeta hjólsins er 100kg og 30kg í geymslurými. Thuja er hægt að fá í ýmsum litum og býður uppá úrval aukahluta. Allir þættir Thuja-hjólsins voru þróaðir og prófaðir með aðstoð ástríðufullra hjólreiðamanna og reyndra söluaðila. Þessi nákvæmni í hönnun var viðurkennd á Dynamo Retail Event 2025, þar sem hjólið var valið Nýstárlegasta vara ársins. Staðalbúnaður Rafmótor og rafhlaða 14.5Ah Shimano 5 hraða gírar Mismunadrif Keðjuhlíf Stöðubremsa Diskabremsur Lykklalás fastur á ramma Ljós að framan og aftan Stillanlegt stýri Eiginleikar Mikill stöðuleiki og góðir akstureiginleikar Stýringin er léttari en á hefðbundnu hjóli Öruggt og þægilegt Stillanlegt sæti Miðjumótor Drægni allt að 70km (Stöðluð rafhlaða) Hámarkshraði 20km/klst Burðargeta 100kg og 30kg í geymslurými Valmöguleikar: Hækjuhöldur Enviolo gírakerfi Ýmsir litir í boði Speglar hægri eða vinstri Fjöðrun undir hnakk Stækkun á rafhlöðu 23.5Ah EIGUM SÝNINGAREINTAK Í SALNUM OKKAR Sjá heimasíðu VanRaam Uppgefið verð er miðað við grunnútgáfu. Endanlegt verð ræðst af völdum aukahlutum og gengi við greiðslu. Öll hjólin frá VanRaam eru sérsmíðuð fyrir notandann og er afgreiðslutími því í samræmi við það eða að jafnaði 8 til 10 vikur frá pöntun. Til að bóka prufu og mátun á hjóli vinnsamlegast sendu póst á info@mobility.is Ath! Auglýst verð vöru er byggt á gengi íslenskrar krónu gagnvart erlendum viðmiðunarmyntum. Réttur er áskilinn til verðbreytinga vegna gengisbreytinga.

Variants (1)
  • Default Title — 1599990.00 ISK — In stock

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

81%