🎄Jóladagatal🎄

🎄Jóladagatal🎄

Brand: Janssen Cosmetics
14990.00 ISK In stock Buy at Merchant

JANSSEN COSMETICS aðventudagatalið er dásamleg leið til þess að hleypa smá auka birtu inn í skammdegið og njóta aðventunnar enn frekar þar sem hver dagur verður dekurdagur. Nærandi niðurtalning til jóla með fullkomlega samsettum ampúlukúr sem svíkur engan. 25 sérvaldar ampúlur í 24 daga meðferð sem gefur húðinni ríkulegan raka, sléttari áferð og geislandi ljóma fyrir hátíðirnar. Vinsæla ampúlujóladagatalið frá JANSSEN COSMETICS sækir í ár innblástur í litadýrð norðurljósanna. Í glæsilegum umbúðum leynast 25 sérvaldar ampúlur sem mynda 24 daga húðmeðferð þar sem mismunandi ampúlur vinna saman að því að endurnæra húðina, draga úr þreytumerkjum, auka rakafyllingu og bæta þéttleika hennar. Dag frá degi fær húðin markvissa meðferð og sérstaka dekurstund í aðdraganda jólanna. Dagatalið er gefið út í takmörkuðu upplagi á hverju ári og býður viðskiptavinum upp á einstakan 24 daga ampúlukúr á frábæru jólatilboði og er nú þegar orðið ómissandi partur af aðventunni fyrir marga. Ampúlur JANSSEN COSMETICS innihalda virk efni í háum styrk, skömmtuð í glerampúlur sem varðveita gæði innihaldsins fram að notkun. Allt innihald hverrar ampúlu er ætlað í eina meðferð og er borið beint á hreina húð, áður en aðrar húðvörur eru notaðar. Gott er að hella um helmingi í lófann í einu og bera jafnt á húðina með léttum klappandi eða þrýstandi hreyfingum á meðan efnin ganga niður í húðina. Síðan er afgangurinn borinn á með sama hætti. Sérvaldar ampúlur í hverjum glugga – Röðin er vandlega úthugsuð til að nýta eiginleika þeirra sem best. Kúrinn hefst á Hyaluron Fluid sem fyllir húðlögin af nauðsynlegum raka og eykur á flutningsleiðir virkra efna niður húðina. Því meiri raki sem er í húðinni því betri verður upptaka virkra efna. Öflug andoxunarefni eiga nú greiða boðleið og húðin er orðin vel móttækileg fyrir áframhaldandi meðferð. Stem Cell Fluid fylgir á eftir með stuðningi við náttúrulega endurnýjun húðarinnar og sléttari áferð. Því næst kemur einn af hápunktum kúrsins, Brilliance Shine Elixir. Þessi lúxusampúla sameinar húðsléttandi Matrixyl™ Synthe’6™ peptíð, þykkni úr persnesku silkitré og rakagefandi hyaluronsýru. Hún dregur úr þreytumerkjum og ásýnd fínna lína og gefur húðinni ferskara og úthvíldara yfirbragð. Meðferðin með henni er endurtekin yfir aðventuna og tengir þannig saman ólíka hluta kúrsins. Vita X Power Fluid tekur síðan við með öflugri andoxunarvörn frá astaxanthíni og C-vítamíni, áður en Marine Collagen Fluidveitir húðinni raka og sýnileg þéttandi áhrif með rakabindandi sjávarkollageni. Á seinni hluta kúrsins vinnur Anti-Wrinkle Booster að sléttari húð með 3-D lifting áhrifum og langvarandi rakagjöf. Radiant Skin Fluid eykur síðan birtu og ljóma húðarinnar þegar nær dregur hátíðunum. Síðustu dagana fyrir jól veitir Bi-Phase Skin Recovery nærandi og endurnærandi meðferð. Eye Flash Fluid veitir húðinni í kringum augun raka, sléttir fínar línur og dregur úr þrota svo augnsvæðið fær ferskara og úthvíldara yfirbragð. Tvöfaldur gluggi á aðfangadag! Á bak við síðasta gluggann bíða Marine Collagen Fluid og Vita X Power Fluid í tvöfaldri mini-booster ampúlumeðferð. Ampúlurnar eru bornar á húðina hvor á eftir annarri og sameina rakagjöf, þéttandi áhrif og öfluga andoxunarvörn með tvöfaldri virkni. Glæsileg lokameðferð sem innsiglar kúrinn og gefur húðinni einstaka fyllingu og ljóma fyrir aðfangadagskvöld. Gjafafegurð innblásin af norðurljósunum…. Djúpur blágrænn litur, silfrað glit og upphleypt merki prýða dagatalið, sem opnast líkt og bók. Falleg aðventugjöf fyrir þann sem kann að meta vandaðar húðvörur og sýnilegan árangur eða dekurgjöf sem þú leyfir þér að njóta í desember. Dagatalið inniheldur 25 ampúlur og ampúluopnara sem fylgir með í fyrsta glugganum.

Variants (1)
  • Default Title — 14990.00 ISK — In stock

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

78%