Þráðlaus þrýstingsstígvél (Ný Týpa)

Þráðlaus þrýstingsstígvél (Ný Týpa)

Brand: Icelandic Wellness
99000.00 ISK In stock Buy at Merchant

Öflug endurheimt Nýju þráðlausu loftþrýstingsstígvélin frá Icelandic Wellness eru hönnuð fyrir þægilega og öfluga endurheimt – án þess að þurfa að vera tengd við rafmagn meðan á notkun stendur. Mikilvægt að vita að sumar fætur þola ekki meira en 30mmHg, kynntu þér málið hjá okkur Þráðlaus og endurhlaðanleg Stillanlegur þrýstingur 30–240 mmHg 5 mismunandi stillingar Öflug 12 L/mín. loftdæla Tímastilling: 15 / 30 / 45 mínútur LCD snertiskjár Fjarstýring / app 3200 mAh rafhlaða Hljóðlát og þægileg í notkun Hönnuð til að styðja við endurheimt og draga úr þreytu og stífleika í fótleggjum Icelandic Wellness Þráðlaus þrýstingsstígvél Slökun og endurheimt – hvar sem þú ert Upplifðu þægilega og stillanlega þrýstingsmeðferð með Icelandic Wellness Þráðlausum þrýstingsstígvélum. Stígvélin eru með 4 aðskilin þrýstingssvæði sem fyllast af lofti eftir því nuddkerfi sem þú velur. Með 5 nuddkerfum, 7 þrýstingsstillingum og þremur tímastillingum getur þú auðveldlega aðlagað notkunina að þínum þægindum. Þráðlaus hönnun gerir þau sérstaklega þægileg til notkunar heima, eftir hreyfingu, í vinnunni eða á ferðalagi. 4 þrýstingssvæði Stígvélin vinna með fjögur aðskilin þrýstingssvæði eftir fætinum. Svæðin fyllast og tæmast af lofti á mismunandi hátt eftir því hvaða nuddkerfi er valið. Þetta skapar taktfast og þægilegt þrýstingsnudd frá fæti og upp eftir leggnum. 5 nuddkerfi 1. Bylgjunudd Þrýstingurinn færist mjúklega í bylgju upp eftir fætinum. 2. Stigvaxandi nudd Þrýstingssvæðin fyllast hvert á eftir öðru, frá fæti og upp eftir leggnum. 3. Tvöföld bylgja Tvö þrýstingssvæði vinna saman í bylgju upp eftir fætinum. 4. Heildarnudd Öll þrýstingssvæðin fyllast samtímis og veita jafnan þrýsting. 5. Stigvaxandi nudd + tvöföld bylgja Sameinar stigvaxandi nudd og tvöfalda bylgju í einu nuddkerfi. 7 þrýstingsstillingar Veldu þrýsting eftir þínum þægindum: 30 • 50 • 80 • 120 • 160 • 200 • 240 mmHg Byrjaðu á lægri stillingu og auktu þrýstinginn smám saman eftir þægindum. Hæsti þrýstingur er ekki sjálfkrafa betri heldur minni. Veldu 15, 30 eða 45 mínútur Þú velur einfaldlega nuddkerfi, þrýsting og tíma og leyfir stígvélunum að sjá um restina. Þrjár tímastillingar eru í boði: 15 / 30 / 45 mínútur. Þráðlaus frelsi Engar slöngur yfir í stóra stjórnstöð og engin þörf á að sitja við innstungu meðan á notkun stendur. Stjórneiningarnar eru festar beint á stígvélin og innbyggð 3200 mAh endurhlaðanleg rafhlaða gerir notkunina þægilega og færanlega. Þú getur því tekið stígvélin með þér og notað þau þar sem þér hentar. Stjórnaðu í símanum Með app-stýringu getur þú stjórnað stillingum á einfaldan hátt í símanum. Stígvélin eru einnig með litaskjá þar sem auðvelt er að fylgjast með stillingum meðan á notkun stendur. Helstu eiginleikar 4 aðskilin þrýstingssvæði 5 nuddkerfi 7 þrýstingsstillingar 30–240 mmHg 15 / 30 / 45 mínútna tímastilling Þráðlaus notkun 3200 mAh endurhlaðanleg rafhlaða USB-C hleðsla App-stýring Litaskjár Hljóðlát notkun, undir 45 dB Hægt að nota eitt eða bæði stígvélin Fyrir daglega vellíðan Frábær kostur þegar þú vilt slaka á eftir langan dag, eftir hreyfingu eða einfaldlega gefa þreyttum fótum smá athygli. Þráðlaus hönnunin gerir stígvélin jafnframt hentug til að taka með í ferðalagið. Öryggi og varúð Ekki nota þrýstingsstígvélin ef grunur er um eða greindur hefur verið blóðtappi (DVT), við bráða sýkingu eða verulega bólgu, alvarlegan slagæðasjúkdóm eða alvarlega/ómeðhöndlaða hjartabilun nema heilbrigðisstarfsmaður hafi ráðlagt notkun. Stöðvaðu notkun ef þú finnur fyrir verk, dofa, mikilli spennu, óvenjulegum kulda eða litabreytingu í fótum. Icelandic Wellness – vellíðan sem passar inn í þitt líf.

Variants (1)
  • Default Title — 99000.00 ISK — In stock

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

72%