BLUETTI B1232 Neyslurafgeymir 4,019Wh (12.8V, 314Ah)
Bluetti rafgeymar fyrir neyslurafmagn og varaafl Bluetti neyslugeymir fyrir m.a. húsbíla, hjólhýsi, báta og fl. - Stjórnað með appi í síma - 5 ára ábyrgð - 6000 hleðslulotur - IP65: Vatns- og rykvarinn Bluetti býður öfluga, endingargóða og plásssparandi rafgeyma sem henta mjög vel fyrir neyslurafmagn í húsbílum og hjólhýsum og einnig sem varaafl. Þeir eru góð lausn fyrir heimili, sumarhús, báta, húsvagna og önnur verkefni þar sem traust orka skiptir máli. Rafgeymarnir eru staflanlegir og hannaðir til að taka sem minnst gólfpláss. Einnig er hægt að tengja þá saman eftir þörfum, hvort sem um er að ræða 12V, 24V eða 48V kerfi. Þannig er auðvelt að byggja upp lausn sem passar við notkunina í dag og stækka hana síðar ef þörf krefur. Sem dæmi má tengja tvo geyma saman fyrir 24V lausn, án þess að kerfið verði óþarflega fyrirferðarmikið. Fyrir stærri 48V kerfi er einnig hægt að stafla fleiri einingum saman og byggja upp öflugt orkugeymslukerfi fyrir fjölbreytt verkefni. Bluetti rafgeymar hafa marga kosti. Þeir hlaðast hraðar en hefðbundnir AGM-, GEL- og sýrurafgeymar, eru léttari í flutningi og einfaldari í uppsetningu. Með Bluetti appinu er síðan hægt að fylgjast með stöðu, spennu og hitastigi á þægilegan hátt. Innbyggð hitastýring styður einnig við notkun í köldu veðri. Mikilvægt er þó að hafa í huga að ef hlaða á rafgeymana með alternator þarf hleðslustýringu sem takmarkar hleðslustrauminn. Það ver bæði alternatorinn og rafgeyminn og tryggir öruggari rekstur. Ef hleðsla fer eingöngu fram með sólarsellum eða 220V hleðslustöð er slík viðbótarstýring yfirleitt ekki nauðsynleg. Áður en rafgeymir er valinn er alltaf ráðlegt að fara yfir tæknilýsingar og notkunarleiðbeiningar til að tryggja að lausnin henti. Það sparar tíma, eykur öryggi og hjálpar til við að velja rétt kerfi frá byrjun. Helstu kostir Bluetti neyslugeymar sameina mikla endingu, góða afkastagetu og sveigjanlega stækkunarmöguleika. Þeir eru því frábær kostur fyrir þá sem vilja létta, öfluga og nútímalega orkulausn sem þolir krefjandi aðstæður og hentar bæði til daglegrar notkunar og varaafls. Bluetti rafgeymar: Þola frost: Sjálvirk hitatækni sér um að viðhalda kjörhitastigi þó svo umhverfishiti fari niður fyrir frostmark. App stjórnun og eftirlit: Fylgist með stöðu, spennu og hitastigi með Bluetti appinu í gegnum Bluetooth. Hröð endurnýjun: Mun meiri hleðsluhraði en t.d. hjá AGM- og sýrurafgeymum og því meiri tími til þess að njóta.. Einfaldir í flutningum og uppsetningu: Mun fyrirferðaminni og léttari en samsvarandi rafgeymar með sýru, AGM eða GEL. Hlið- og raðtengjanlegir: Tengið marga rafgeyma saman í þá einingu sem þér hentar, 12, 24, 48VDC. 5 ára verksmiðjuábyrgð: Áætlaður líftími 10 - 15ár. Orka í allt - fyrir alla: Tilvalin lausn fyrir húsvagna, báta, varaafl, sumarhúsið, utanborðsmótorinn og ferðalagið. Enginn alternator þolir til lengdar að vera tengdur beint inn á öfluga Lithium rafgeyma án straumstýringar. Áður en rafgeymir er keyptur er um að gera að kíkja á notkunarleiðbeiningarnar Vertu viss um að rafgeymir henti því verkefni sem hann er ætlaður því rafgeymi er ekki hægt að skila ef innsigluð pakkningin hefur verið opnuð. Bluetti neyslugeymarnir fást í Rótor Tæknilýsing rafhlöðu Þessi öfluga LiFePO₄ litíum-járnfosfat rafhlaða er hönnuð fyrir örugga, endingargóða og sveigjanlega notkun þar sem áreiðanleg orka skiptir máli. Hún hentar vel í fjölbreytt verkefni, allt frá varaafli og frístundanotkun yfir í sérhæfðari orkukerfi. UPPLÝSINGAR UM RAFHLÖÐU Rafhlöðugeta 4.019,2 Wh (12,8V, 314Ah) Tegund rafhlöðu LiFePO₄ (litíum-járn-fosfat) Líftími / hleðslulotur 6.000 lotur við 70% afkastagetu IP-vörn IP65 HLEÐSLA & AFLÖSUN Hleðslustraumur 70 A (ráðlagður) 140 A hámark Aflausnarstraumur 140 A hámark Hámarks aflausnarstraumur 310 A í 8 sek. Vinnsluhitastig Við hleðslu: -20°C til 55°C Við afhleðslu: -20°C til 55°C Geymsluhitastig Allt að 1 mánuði: -20°C til 40°C Allt að 6 mánuði: -20°C til 25°C Hitavörn rafhlöðufruma Við hleðslu: <-1°C eða >61°C Við afhleðslu: <-21°C eða >61°C ALMENNT Þyngd Um það bil 29,3 kg Mál (L x B x D) 416 × 290 × 231 mm Hámarks stækkun (samhliða og í röð) 385,8 kWh (4S24P), 51,2 V, 7.536 Ah Vottanir MSDS, UN38.3, FCC, CE, RoHS, UL Ábyrgð 5 ár
Variants (1)
- Default Title — 229900.00 ISK — In stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.