TENWAYS Longtail DUO — Forpöntun, staðfestingargjald (desember 2026)

TENWAYS Longtail DUO — Forpöntun, staðfestingargjald (desember 2026)

Brand: TENWAYS
SKU: LTDUO-DEPOSIT-DEC26
49900.00 ISK In stock Buy at Merchant

Tryggðu þér TENWAYS Longtail DUO til afhendingar í desember 2026.TENWAYS hefur staðfest næstu sendingu af Longtail DUO til okkar í desember og 8 hjól eru þegar frátekin. Þetta 49.900 kr. staðfestingargjald tekur frá eitt hjól á þínu nafni; fjöldinn er takmarkaður og forpantanir eru afgreiddar í pöntunarröð.Svona virkar þttaÞú greiðir 49.900 kr. staðfestingargjald hér, með korti eða millifærslu.Hjólið er á venjulegu verði, 649.900 kr. — staðfestingargjaldið dregst frá, þannig að eftirstöðvarnar, 600.000 kr., eru greiddar þegar hjólið þitt er samsett og tilbúið til afhendingar í desember.Hjólið er afhent samsett og yfirfarið hjá okkur í Reykjavík, með öllum fjölskylduaukabúnaði (að virði 50.000 kr.) inniföldum.Nytjahjólastyrkur: Longtail DUO er á lista Loftslags- og orkusjóðs yfir styrkhæf nytjahjól — 33% af kaupverði, að hámarki 200.000 kr., sem þú sækir um eftir kaupin með lokareikningnum. Sjóðurinn staðfesti við okkur 29. október 2026 að styrkurinn breytist ekki með nýju reglugerðinni sem tekur gildi 1. nóvember, svo hann gildir líka fyrir desemberhjólin. Svona virkar styrkurinn →Full endurgreiðsla: þú getur hætt við hvenær sem er fyrir afhendingu og færð staðfestingargjaldið endurgreitt að fullu.Vetrarklárt við afhendingu — frí ásetningDesemberhjól á skilið nagladekk. Bættu Suomi Tyres Routa Cargo E-bike nagladekkjum (24×2,4″, 19.990 kr. stykkið — venjulegt verð) við forpöntunina og við setjum þau undir án gjalds áður en þú sækir hjólið; sumardekkin fylgja með heim. Svaraðu bara pöntunarstaðfestingunni fyrir 15. nóvember svo við getum pantað dekkin í tæka tíð.Viltu prófa hjólið fyrst? Sýningarhjólið er á staðnum — bókaðu reynsluakstur. Spurningar: t2@t2.is eða 896 8076.Sjá allar upplýsingar um Longtail DUO →

Variants (1)
  • Default Title — 49900.00 ISK — In stock

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

78%