HRING EFTIR HRING FYRIR MÖMMU 🏃♥️
Hring eftir hring fyrir mömmu Laugardaginn 19. september tekur Magnús Jóhann Hjartarson þátt í Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk og safnar áheitum til styrktar Parkinsonsamtökunum. Mamma Magnúsar greindist með Parkinson árið 2020 og ætlar hann að tileinka henni hlaupið. Í Bakgarðshlaupinu er 6,7 km hringur ræstur á hverjum klukkutíma og Magnús heldur áfram eins lengi og hann getur. Leggðu söfnuninni lið með því að velja styrkupphæð. __________________ Parkinsonsamtökin á Íslandi eru skráð á almannaheillaskrá Skattsins. Það þýðir að einstaklingar og rekstraraðilar sem styrkja samtökin geta átt rétt á skattfrádrætti vegna framlagsins. Nánari upplýsingar um skattfrádrátt vegna gjafa og framlaga má finna á vef Skattsins.
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.