Binta kerti stórt

Binta kerti stórt

Brand: Sweet Salone
SKU: TWKR02GRCL
15990.00 ISK In stock Buy at Merchant

BINTA kerti – stórt Hlýja, handverk og látlaus fegurð. BINTA kertið frá Sweet Salone skapar notalega stemningu á heimilinu og kemur í handunnu leirkeri sem fær að njóta sín löngu eftir að kertið hefur brunnið út. Kertið er afrakstur samstarfs Sweet Salone, KER Reykjavík, Lettie Stuart Pottery og byKrummi Candles, þar sem tímalaus hönnun mætir hefðbundnu handverki. Hvert ker er handunnið af færum leirkerasmiðum Lettie Stuart Pottery í Síerra Leóne og fyllt með handhelltu náttúrulegu vaxi. Úr náttúrulegum leir í einstakt handverk Ferlið hefst með leir sem er sóttur í leirríkt þorp í Síerra Leóne. Hann er þurrkaður, mulinn og sigtaður áður en vatni er bætt við. Að lokinni hvíld er leirinn hnoðaður í höndunum og mótaður á hefðbundnum, fótknúnum leirkerarennibekk. Kerin þorna síðan hægt, í allt að þrjár vikur eða lengur þegar rakinn er mikill. Þau eru fyrst brennd í viðarkyntum ofni í að minnsta kosti tólf klukkustundir, síðan glerjuð og brennd aftur. Hvert skref setur mark sitt á kerið og gefur því einstakan karakter. Fallegt áfram, jafnvel þegar loginn slokknar Þegar kertið hefur brunnið út getur kerið fengið nýtt hlutverk sem skrautskál, blómapottur eða fallegur munur á uppáhaldshillunni. BINTA er hugulsöm gjöf fyrir unnendur hönnunar og handverks – eða notaleg viðbót við þitt eigið heimili. Handunnið leirker frá Síerra Leóne. Handhellt náttúrulegt vax. Hannað til að nýtast áfram eftir að kertið hefur brunnið út. Mál: Breidd 16 cm · Hæð 7 cm. Hvert ker er handgert og því getur verið örlítill munur á stærð, lögun og áferð. Engin tvö eru alveg eins – það er hluti af fegurð handverksins.

Variants (1)
  • Default Title — 15990.00 ISK — In stock

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

89%