25.-27. september 2026 - Tveggja nótta dekur prjónahelgi á Hótel Búðum / frá aðeins kr. 69.950 á mann
Tveggja nótta dekur prjónahelgi á Hótel Búðum Komdu og njóttu notalegrar helgar á Hótel Búðum dagana 25.–27. september. Við ætlum að safnast saman í góðum hópi kvenna og njóta þess að prjóna, spjalla, hlæja og eiga dýrmætar stundir saman í fallegri og róandi orku Snæfellsness. Helgin verður uppfull af prjónagleði og góðum félagsskap - ásamt skemmtilegum uppákomum eins og happdrætti, söng, ljúffengum máltíðum og notalegum samverustundum. Þær Salka Sól og Sjöfn leiða gleðina, aðstoða með prjónaskap og halda utan um dagskrána – og eins og áður, má búast við einstaklega skemmtilegri stemningu. Þetta er í tíunda sinn sem þær standa fyrir þessari geysivinsælu prjónahelgi en í fyrsta sinn hér á Hótel Búðum - og hefur hún jafnan selst hratt upp. Fullkominn vettvangur fyrir byrjendur sem og lengra komna - og allt handavinnufólk. Innifalið í verði fyrir tvo/tvær í herbergi: Gjafapokar við innritun og fordrykkur Gisting í tvær nætur Ljúffengur morgunverður báða morgna Kvöldverður bæði kvöldin Hádegisverður á laugardeginum Síðdegishressing Prjónagleði og skemmtileg dagskrá stýrð af þeim Sölku Sól og Sjöfn Allt þetta frá aðeins kr. 69.950 á mann. Hótel Búðir er eitt fegursta sveitahótel landsins, ríkt af sögu og umkringt einstakri náttúrufegurð. Hótelið hefur nýlega gengist undir umfangsmiklar endurbætur, meðal annars með nýbyggingu og fjölgun herbergja, sem gerir dvölina enn þægilegri. Komdu og upplifðu notalega dekur helgi þar sem prjónagleði, góður matur, falleg náttúra og frábær félagsskapur mætast á einum stað. Tryggðu þér pláss í tíma – framboð er takmarkað. Vinsamlegast hafið samband við budir@budir.is sé þess óskað að bóka einstaklingsherbergi. Ath. Myndir af herbergjatýpum má sjá inn á heimasíðu Hótel Búða.
Specifications
- Dagsetningar
- Helgin 25.-27. september
- Herbergistegund
- Loft herbergi (eldri bygging), Standard herbergi (eldri bygging), Deluxe herbergi (eldri bygging), Minni Svíta (eldri bygging), Superior Standard (nýja bygging), Superior Deluxe (nýja bygging), Búðir Stóra Svíta (nýja bygging)
- Fjöldi í herbergi
- Tvær
Variants (7)
- Helgin 25.-27. september / Loft herbergi (eldri bygging) / Tvær — 139900.00 ISK — In stock
- Helgin 25.-27. september / Standard herbergi (eldri bygging) / Tvær — 149900.00 ISK — In stock
- Helgin 25.-27. september / Deluxe herbergi (eldri bygging) / Tvær — 153900.00 ISK — In stock
- Helgin 25.-27. september / Minni Svíta (eldri bygging) / Tvær — 211900.00 ISK — In stock
- Helgin 25.-27. september / Superior Standard (nýja bygging) / Tvær — 155900.00 ISK — In stock
- Helgin 25.-27. september / Superior Deluxe (nýja bygging) / Tvær — 163900.00 ISK — In stock
- Helgin 25.-27. september / Búðir Stóra Svíta (nýja bygging) / Tvær — 243900.00 ISK — In stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.