Myndflos // Punch needle / 24. september

Myndflos // Punch needle / 24. september

Brand: Flóð og fjara
12900.00 ISK In stock Buy at Merchant

Námskeiðsflóran blómstrar í Flóð & fjöru og nú bætast við námskeið í myndflosi (punch needle). Þessari skemmtilegur útsaumsaðferð er oft líkt við að teikna á striga en í stað þessa að nota penna og blað notum við flosnál, garn og útsaumsklút. Á námskeiðinu fá þátttakendur að spreyta sig á myndflosinu í flæði og sköpun í notalegu umhverfi á vinnustofu Flóðs & fjöru. Allt efni verður á staðnum og fá þátttakendur að taka með sér heim það sem þau flosa í tímanum. 15% afsláttur er svo af flosnálum og útsaumsklútum á námskeiðsdegi ef einhver eru spennt að halda áfram þegar heim er komið. Dagsetning: Fimmtudaginn 24. september Tímasetning: kl. 17:30-20:00 Skráningargjald: 12.900kr Engin handavinnukunnátta þarf að vera til staðar. Yljum okkur á hlýjum tebolla og njótum huggulegrar stemningar. Kennari Hera Sigurðardóttir. Sköpun og handavinna eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín. Afbókunarskilmálar á námskeið Ef afbókað er með meira en tveggja sólarhringa fyrirvara fæst skráningagjaldið endurgreitt. Ef afbókað er innan eins sólarhrings fæst skráningagjaldið ekki endurgreitt. Alltaf velkomið að hafa samband og athuga hvort önnur dagsetning henti sé þess óskað.

Variants (1)
  • Default Title — 12900.00 ISK — In stock

AI Readiness

Good foundation, but some important product data is still missing.

77%