Esja - húfa
Esja húfa er fullkomin með peysunni. Prjónuð í hring með styttum umferðum í byrjun til að móta eyrnaleppa. Sama mynstur og á peysunni, samsett úr sléttum og brugðnum lykkjum. Ég mæli með að lesa yfir uppskriftina í heild áður en þú byrjar. Stærðir: 1 árs (2-3 ára) 4-5 ára. Garn: Mashdale frá Filcolana (50 g = 125 m). Fæst hjá Garn í gangi á Akureyri. Garnmagn: 50 (50) 100 g. Prjónar: 4 mm hringprjónar og sokkaprjónar. Prjónfesta: 22/10 slétt prjón (22 lykkjur á 10 cm) á 4 mm prjóna. Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.
Variants (1)
- Default Title — 450.00 ISK — In stock
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.