Velvet Cocoon Boby Oil
Silkimjúk, nærandi og létt olía sem gengur auðveldlega inn í húðina. Hún er auðguð endurnærandi rauðþörungum og kaldpressuðum olíum úr jojoba, kukui og baobab. Astaxanthin úr rauðþörungum er talið vera eitt öflugasta náttúrulega andoxunarefnið og býr yfir bólgueyðandi eiginleikum sem hjálpa til við að styrkja og vernda húðina. Þessi flauelsmjúka húðolía veitir húðinni einstaka mýkt og raka og endurheimtir frísklegt, ljómandi útlit hennar. The Velvet Cocoon er ilmbætt með upplyftandi engifer, sedrusviði og ylang-ylang sem skilja eftir sig dásamlegan ilm á húðinni og vekja skilningarvitin til lífsins. Stærð 200ml Nuddaðu olíunni mjúklega inn í húðina, allt frá tám og upp að viðbeinslínu. Best er að bera hana á rakan húð eftir bað eða sturtu til að ná sem bestum árangri. Fyrir sérstaklega nærandi og rakagefandi meðferð fyrir þurra og þyrsta húð má bæta 4–5 dropum af olíunni út í baðvatnið. Einnig tilvalin til: Raksturs Umhirðu naglabanda Í baðið sem baðolía Nudds Notkunar eftir sólböð (aftersun) 100% VEGAN Innihaldsefni og virkni þeirra ASTAXANTHIN (ASTAXANTÍN): Astaxantín úr rauðþörungum er talið eitt öflugasta náttúrulega andoxunarefnið. Það hefur náttúrulega bólgueyðandi eiginleika sem hjálpa til við að styrkja og vernda húðina. Það vinnur gegn þurrki og verndar húðina gegn skaðlegum sindurefnum og sólarskemmdum. LAMINARIA-ÞÖRUNGAR: Næringarefni í Laminaria-þörungum hjálpa til við að draga úr roða og bólgum og veita húðinni djúpan raka. Þeir róa og endurnæra þurra og skemmda húð. Þörungarnir eru ríkir af lífsnauðsynlegum steinefnum og snefilefnum og innihalda A-, E-, C- og B-vítamín. Þeir stuðla einnig að myndun kollagens í húðinni og hjálpa til við að vernda hana gegn skaðlegum sindurefnum. KUKUI-FRÆOLÍA: Gengur djúpt inn í húðina og myndar verndandi hjúp sem hjálpar til við að verja hana gegn utanaðkomandi áreiti. Hún mýkir og róar húðina og stuðlar að auknum teygjanleika og mýkt hennar. JOJOBA-OLÍA: Jojobaolía hefur bólgueyðandi og græðandi eiginleika. Hún er rík af fitusýrum og hefur eiginleika sem falla vel að náttúrulegu sýrustigi húðarinnar. Hún er því einstaklega mild og nærandi, hjálpar til við að viðhalda heilbrigðu jafnvægi húðarinnar og gefur henni fallegan ljóma. YLANG-YLANG: Þekkt fyrir að stuðla að endurnýjun húðfrumna, mýkja fínar línur og bæta teygjanleika húðarinnar. Innihaldslýsing Aleurites Moluccana (Kukui) Oil, Adansonia Digitata (Baobab) Seed Oil, Helianthus Annuus (Sunflower) Seed Oil, Simmondsia Chinensis (Jojoba) Seed Oil, Laminaria Digitata (Algae), Astaxanthin (Red Algae), Cedrus Atlantica (Cedar) Wood Oil, Boswellia Carterii (Frankincense) Oil, Pelargonium Graveolens (Geranium Rose) Flower Oil, Zingiber Officinale (Ginger) Oil, Cymbopogon Schoenanthus (Lemongrass) Oil, Citrus Aurantium Amara (Neroli) Flower Oil, Vanilla Planifolia (Vanilla) Fruit Extract, Cananga Odorata (Ylang Ylang) Flower Oil, Tocopherol (Vitamin E) Oil. Allar olíur eru vottaðar lífrænar að undanskilinni E-vítamínolíunni. 100%VEGAN 100% vegan – inniheldur engin hráefni úr dýraríkinu.
Variants (1)
- Default Title — 10900.00 ISK — In stock
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.