Wicker – með Alexander Skarsgård

Wicker – með Alexander Skarsgård

4500.00 ISK In stock Buy at Merchant

Háskólabíó 29. september, kl 19 Upplifðu Wicker með Alexander Skarsgård í Háskólabíói – stórleikarinn sjálfur verður viðstaddur! Alexander Skarsgård verður viðstaddur Norðurlandafrumsýningu Wicker á RIFF og heldur stutta tölu fyrir gesti áður en myndin hefst. Einstakt tækifæri til að sjá nýjustu mynd Skarsgård á hvíta tjaldinu og hitta einn af þekktustu leikurum samtímans í eigin persónu. Skarsgård tekur jafnframt við heiðursverðlaunum RIFF 2026 fyrir framúrskarandi listfengi og ávarpar gesti við hátíðlega athöfn á sýningunni. Um myndina Í jaðri sjávarþorps býr kona ein sem sækir sjóinn; ógift, daunill og stöðugt skotmark stríðni bæjarbúa. Dag einn fær hún nóg af öllu og pantar sér eiginmann ofinn úr basti. jafn íhaldssömu samfélagi vekur svo óhefðbundið samband bæði afbrýðisemi, hneykslun og uppnám. Wicker er í leikstjórn Alex Huston Fischer og Eleanor Wilson og skartar Alexander Skarsgård, Olivia Colman, Peter Dinklage og Elizabeth Debicki í aðalhlutverkum. Takmarkaður fjöldi miða – tryggðu þér sæti á þessa einstöku RIFF-sýningu.

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

66%