Stjörnuregn - barnapeysa

Stjörnuregn - barnapeysa

Brand: Litli prins
1090.00 ISK In stock Buy at Merchant

Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður með útaukningum í berustykki. Hálslíning er tvöföld þó hægt sé að hafa hana einfalda ef þess er fremur óskað. Ermalykkjur eru geymdar á meðan bolur er prjónaður og þær svo prjónaðar hvor í sínu lagi. Notaðir eru tveir litir sem fá að njóta sín í einföldu mynstri á bolnum. Þetta er hlý og notaleg peysa með fallegum smáatriðum og er tilvalin fyrir litlar ævintýramanneskjur, hvort sem er í hversdagslegum leik eða á sparilegum stundum. Í tvílitu mynsturprjóni er mikilvægt að ákveða hvor liturinn á að vera ríkjandi og hvor á að vera víkjandi, og halda böndunum alltaf eins yfir fingurinn. Ríkjandi litur liggur nær þér (innar á fingrinum) en víkjandi er fjær (framar á fingrinum). Í peysunni á myndinni var ég með hvíta litinn sem ríkjandi lit. STÆRÐIR 6-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára / 4 ára / 5 ára / 6 ára / 7 ára / 8 ára UMMÁL BOLS 56 / 58 / 60 / 62 / 64 / 67 / 69 / 71 / 72 cm GARN Cashmerini frá Gabo Wool (50 gr= 115 mtr). Fæst hjá vetrargarn.is Litur A: 100, 150, 150, 150, 200, 200, 200, 250, 250 gr (rauður á mynd) Litur B: 50, 50, 100, 100, 100, 100, 100, 150, 150 gr (grár á mynd) Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst. PRJÓNAR Hringprjónn 40-60 cm, # 3,5 og 4,0 Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0 PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI 22 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf) ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA Prjónamerki Hjálparband eða nælur Skæri, nál

Variants (1)
  • Default Title — 1090.00 ISK — In stock

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

78%