Sjöan - barnapeysa með hring-berustykki
Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður, með útaukningum í berustykki. Hálslíningin er tvöföld, en hægt er að hafa hana einfalda ef þess er óskað. Berustykkið er einlitt, en mynstur er prjónað á bol. Ermalykkjurnar eru geymdar á meðan bolurinn er prjónaður og ermarnar síðan prjónaðar hvor í sínu lagi. Í tvílitu mynsturprjóni er mikilvægt að ákveða hvor liturinn á að vera ríkjandi og hvor á að vera víkjandi, og halda böndunum alltaf eins yfir fingurinn. Ríkjandi litur liggur nær þér (innar á fingrinum) en víkjandi er fjær (framar á fingrinum). Í peysunni á myndinni var ég með ljósa litinn sem ríkjandi lit. STÆRÐIR 6-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára / 4 ára / 5 ára / 6 ára / 7 ára / 8-10 ára UMMÁL 55 / 60 / 65 / 71 / 71 / 76 / 76 / 82 / 87 cm GARN Tillaga 1: Fine Merino frá Gabo Wool (50 gr.= 105 mtr). Litur A (aðallitur): 200, 200, 250, 250, 300, 300, 300, 350, 400 gr. Litur B (mynsturlitur): 50, 50, 50, 100, 100, 100, 100, 100, 150 gr. Tillaga 2: My Time Merino frá Gabo Wool (50 gr.= 230 mtr) prjónað tvöfalt Litur A (aðallitur): 200, 200, 250, 250, 300, 300, 300, 350, 400 gr. Litur B (mynsturlitur): 50, 50, 50, 100, 100, 100, 100, 100, 150 gr. Garnið frá Gabo Wool fæst hjá vetrargarn.is PRJÓNAR Hringprjónn 40-60 cm, # 3,5 og 4,0 // Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0 PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI 22 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf) ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA Prjónamerki Hjálparband eða nælur Skæri, nál
Variants (1)
- Default Title — 763.00 ISK — In stock
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.