Íslandshús - Glaumbær
Íslandshús er lítil húsaröð innblásin af íslenskri byggingarhefð. Fyrstu híbýli landnámsmanna voru reist úr torfi og grjóti, byggingarefnum sem voru vel þekkt í norður-Evrópu löngu fyrir landnám Íslands. Í fyrstu voru húsin stök skálahús, en á 15. öld var farið að byggja fleiri hús saman og tengja þau með göngum, það byggingarlag kallaðist gangabær. Seint á 18. öldinni tóku burstabæirnir við, en bygging húsa úr torfi og grjóti lagðist endanlega af í upphafi 20. aldar. Glaumbær í Skagafirði er einn þekktasti gangabær landsins og fyrirmynd þessa litla húss. Húsin sóma sér vel í gluggakistunni, á bókahillunni eða á skrifborðinu, ein og sér eða öll saman í pínulitlu þorpi. Nánar Gjafaaskja Módel: lengd 8 cm × dýpt 3 cm × hæð 3 cm Ekki leikfang (4+ ára) Hönnun: Nomad Reykjavík
Variants (1)
- Default Title — 2490.00 ISK — Out of stock
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.