ASKUR DÖMUPEYSA

ASKUR DÖMUPEYSA

Brand: Yrja knit
1190.00 ISK In stock Buy at Merchant

Vinsæla Askur peysan er nú komin í dömuútgáfu. Peysan er með áferðarmynstri á bol og skemmtilegum smáatriðum í hönnun. Breiður laski teygir sig frá hálsmáli niður berustykkið, í hliðarnar á bolnum og undir ermum, niður að stroffi sem er með klauf í hliðum. Sniðið er frekar vítt með hálsmáli sem er lægra að framan en aftan, svo peysan fer vel um háls og herðar. Prjónað er frá hálsmáli og niður. Í fyrstu er prjónað fram og til baka til að móta hálsmálið en síðan tengt í hring. Laskalykkjur skilja að ermar og bak- og framstykki, og er aukið út frá þeim niður berustykkið. Skipt er í bol og ermar sem hvort tveggja eru prjónuð í hring. Í lokin eru teknar upp lykkjur í hálsmáli til að prjóna stroff. Auðvelt er að aðlaga sídd og ermalengd að þörfum notandans. Stærðir: 1 – 2 – 3 – 4 – 5 – 6 / Bolvídd peysu 96 – 104 – 113 – 120 – 127 – 136 sm. Prjónfesta: 16 lykkjur og 20 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm. Prjónar: Langir og stuttir hringprjónar nr. 5 og 6, sokkaprjónar nr. 5 – eða sú prjónastærð sem gefur rétta prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf ekki sokka- og ermaprjóna. Garn: Ullar/alpacagarn sem gefur rétta prjónfestu. Peysan á myndinni er prjónuð í Eco+ frá Cascade ( 250 g = 437 m) í lit 3103 Legion Blue. Garnþörf u.þ.b. 800 – 900 – 1000 – 1100 – 1200 – 1300 m (til viðmiðunar). Peysan hefur komið vel út í Vams frá Rauma og svo er líka hægt að nota tvær garntegundir saman til að fá skemmtilega hreyfingu í prjónið, til dæmis Drops Karisma og Flora saman. Erfiðleikastig: 3-4 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Útaukning og úrtaka til hægri og vinstri, áferðarmynstur prjónað fram og til baka og í hring samtímis því að gerðar eru laskaútaukningar og hálsmál mótað. Lykkjur prjónaðar upp í hálsmáli, ítölsk affelling (ef vill). Mynsturteikningar sem sýna útaukningar og hálsmál, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni. Við kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.

Variants (1)
  • Default Title — 1190.00 ISK — In stock

AI Readiness

Good foundation, but some important product data is still missing.

83%