Skartgripanámskeið - Mótaðu þitt eigið skart 19.okt'26 kl.18:00 7pláss laus

Skartgripanámskeið - Mótaðu þitt eigið skart 19.okt'26 kl.18:00 7pláss laus

Brand: Event
40000.00 ISK In stock Buy at Merchant

Við mælum með að lesa sér vel um námskeiðið hér að neðan: Í byrjun námskeið verður kynning á vaxmótunaraðferðinni og sögu þess. Dagsetning: mánudagur 19.október 2026 Staðsetning: Laugavegur 72, 101 RVK Lengd námskeiðs: 18:00-21:00 (sumir búnir fyrr & velkomið að vera lengur) Verð: 40.000kr Innifalið: Verkfæri og efniviður til að móta þitt fullkomna skart, drykkir & smá góðgæti. Einn silfur gripur (hringur, men eða stud eyrnalokkar) sem verður sendur með Dropp gjaldlaust eða sótt 3-8 vikum eftir námskeiðið. Lilja hjálpar þér að koma þinni hugmynd í framkvæmd NÝTT: Við kynnum tvær aðferðir sem hægt er að velja úr til að gera þinn fullkomna hring. Einnig er hægt að bæta við hvítum Cubic Zirkonium steinum hringlaga frá stærð 2,5mm - 6 mm. Tungumál: Íslenska, Enska Getustig: Byrjendur og lengra komna. Á hverju námskeiði komast 11 að. Hægt að fá reikning fyrir stéttarfélög, sendið email á info@lbj.is eftir greiðslu. Á þessu námskeiði ert þú listamaðurinn þar sem þú mótar þinn eigin hring eða hálsmen með vaxi. Við fylgjum aðferð sem kallast "Lost Wax Casting" eða vaxmótum. Vaxið er ekki eins og venjulegt kertavax, heldur sérhannað fyrir vaxmótun. Aðferðin er þúsund alda gömul, í nútímavæddum búningi. Eftir námskeiðið tekur Lilja gripinn og býr til steypumót og hellir bræddu 925 silfri ofan í mótið. Steypuferlið tekur tvo daga, eftir það slípar Lilja gripinn og pússar upp. Við bjóðum einnig upp á að gullhúða gripinn með 18 karata gullhúðun. Gjald fyrir gullhúðun er 5000 kr. Innifalið í námskeiðinu er 925 silfurskartgripur sem þú mótar með vaxaðferðinni. Allur búnaður er á staðnum. Þú munt læra og fá innsýn inn í hvernig skartgripir eru búnir til. Þetta getur líka verið einstakt tækifæri til að búa til skartgrip fyrir einhvern sem þér þykir vænt um. Hægt er til dæmis að stimpla fingrafarið sitt á gripinn. Námskeiðið er í tvær klukkustundir, staðsett á Laugaveg 72, 101 RVK í verslun Lilju Björk Jewellery. Gripinn færðu afhendan 3-8 vikum eftir námskeiðið. Bæði hægt að sækja eða fá sent með Dropp gjaldlaust. Athugið að í þessu námskeiði verða oftast til óreglulegir skartgripir með náttúrulegu formi. Ef þú vilt búa til stílhreinan hring eða hálsmen þá mæli ég ekki með þessu námskeiði. Afbókanir á námskeið þurfa að berast innan 48 tíma. Það getur komið fyrir að steypan misheppnist, ef það gerist færðu að velja á milli þess að taka aftur þátt í námskeiðinu eða fá heimakitt þar sem þú færð öll verkfæri og þinn tíma. UM LILJU BJÖRK Lilja Björk lærði í Kaupmannahöfn í skólanum København Erhvervsakademi (KEA). Hún útskrifaðist með BA iðngráðu í skartgripahönnun, viðskiptafræði og tækni (Jewellery design, Business and Technology). Í skólanum var kennt allt frá því að smíða skartgripi, 3D teiknun, hönnun og viðskiptafræði. Lost Wax Casting / Vaxmótun var stór hluti af náminu. Eftir námið fór Lilja í fæðingarorlof og flutti heim, var á krossgötum í lífinu sem einstæð móðir. Hún fékk óvænt verkefni að 3D teikna Bleiku Slaufuna sem kom út 2023. Á þessum krossgötum ákvað Lilja að elta draumana og stofna sitt eigið fyrirtæki, Lilja Björk Jewellery í nóvember 2023. Síðan þá hefur hún verið að byggja það upp og fjárfesti í steyputækjum til að minnka fótspor fyrirtækisins og vera umhverfisvænni en allir skartgripirnir eru smíðaðir á Íslandi með 925 endurunnu silfri. Eftir að hafa byrjað vinnustofuna sína í bílskúrn í Árbæ, hefur hún fært sig á Baldursgötu 36, þar sem er einnig verslun og heldur hún námskeiðin sínn Mótaðu þitt eigið skart. Hún býður einnig upp á að endurnýja gamalt skart og gefa því nýtt líf með 18 karata gullhúðun.

Specifications
Ticket Type
Mótaðu þitt eigið skart - 19.okt kl 18:00
Variants (1)
  • Mótaðu þitt eigið skart - 19.okt kl 18:00 — 40000.00 ISK — In stock

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

80%