Pulp Fiction-veisla á RIFF 2026
Í tilefni af komu portúgölsku stórleikkonunnar María de Medeiros á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík mun RIFF í samstarfi við Hamborgarabúllu Tómasar bjóða upp á einstakan bíóviðburð en það er sérstök sýning á meistaraverkinu Pulp Fiction frá 1994, að Maríu de Medeiros viðstaddri en hún fer með eitt aðalhlutverkanna í myndinni. Hver getur gleymt eftirfarandi samtali hennar, í hlutverki Fabienne, við unnusta sinn, Butch (leikinn af Bruce Willis) í myndinni: – Whose Motorcycle is this? -It’s a chopper, baby. -Whose chopper is this? -Zed’s. -Who’s Zed? -Zed’s dead, baby. Zed’s dead. Hamborgaraveisla með öllu tilheyrandi í anda myndarinnar Til að hámarka gleðina mun Búllan sjá um hamborgara fyrir bíógesti sem afgreiddir verða í hléi, en en eins og glöggt bíóáhugafólk man þá koma hamborgarar ítrekað fyrir í Pulp Fiction. Gestir sem kaupa miða á myndina inni á heimasíðu RIFF velja sér einn eftirtaldra hamborgara við kaupin og fá að auki ljúffengan sjeik. Gestir geta valið um eftirfarandi hamborgara: 1) Royale With Cheese – af því við Íslendingar notum metrakerfið og höfum ekki hundsvit á hvað kvartpundari er. 2) Big Kahuna Burger – sólrík Hawaii stemning í hamborgara. Okkur skilst að þeir séu ljúffengir, en við höfum ekki smakkað þá. Hvernig eru þeir? 3) The Durward Kirby Burger – veganborgari fyrir þá sem kjósa, jafnvel þó Mia Wallace hafi pantað hann blóðugan inni á JackRabbit Slim’s, sælla minninga. Með þessu fá gestir að sjálfsögðu hinn nafntogaða „5 Dollara Mjólkurhristing“ eins og hann heitir í myndinni. Við setjum hvorki búrbon né neitt annað í hann. Nammmm! Maria de Medeiros tekur þátt í spurt og svarað að sýningu lokinni Pulp Fiction er ein nafntogaðasta og frægasta kvikmynd síðustu áratuga, með endalaust af fleygum setningum sem gaman er að hafa eftir enda hlaut hún Óskarsverðlaun fyrir besta frumsamda handrit. Gestir eru hvattir til að mæta uppábúnir í anda myndarinnar til að gera viðburðinn sem eftirminnilegastan. Eins og framar greindi verður María de Medeiros viðstödd sýninguna og tekur þátt í spjalli með áhorfendum eftir sýningu myndarinnar þar sem þeim gefst kostur á að spyrja hana út í myndina og fleira til. Ljóst er að færri munu komast að en vilja á þessa einstöku stemningssýningu á einni vinsælustu mynd síðari tíma og áhugasamir því hvattir til að tryggja sér miða um leið
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.