September-Hespan

September-Hespan

SKU: SeptemberH
3990.00 ISK In stock Buy at Merchant

Níunda litun af tólf árið 2026… allir mánuðir ársins fá sinn lit! Ég mun lita hvern mánuð á þremur garn grunnum…. VAR upprunalega planið! Fór í 4 grunna í febrúar og býð nú uppá 6 mismunandi garngrunna : Fínerí, Fínerí DK, Fiðu, Merino silki fisband og Merino silki singles, Merino silki DK (Sjá innihald hér fyrir neðan). Þú getur alltaf tryggt þér eintak hér í forsölu áður en hver mánuður fer í litun þar sem mánaðarhespurnar verða litaðar í takmörkuðu upplagi til að byrja með. September liturinn er í rómantískari kantinum… ég veit ekki hvað er að gerast en ljós grá bleikir tónar hafa verið að ásækja mig og ég er alveg að fara að prjóna mér þannig Kusk peysu einhverra hluta vegna…. Ég tók mynd af deyjandi Holtasóley í lok sumarfrís sem ég átti mjög erfitt með að hætta að horfa á… skil hana eftir hér svo þú sjáir hvar hausinn minn er þessa stundina… Ég mun alltaf setja inn teikningu af hespu hvers mánaðar þegar forsala fer af stað svo þú hafir einhverja hugmynd um hvað þú ert að kaupa ef þú vilt vera alveg viss um að ná eintaki… eða þú getur beðið eftir myndum af hespunum tilbúnum og náð þér í eintak þá áður en þær klárast… Hespurnar verða sendar út/afhentar eigi síðar en 4. september Hér fyrir neðan getur þú lesið allt um þær garntegundir sem bjóðast. Fínerí er undurmjúk merínó ull í fínbands (fingering) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna. Innihald:85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon Grófleiki: Fínband 100g/400m Prjónastærð: 2.5mm – 4mm Fínerí DK er undurmjúk merínó ull í léttbands (Dk) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna. Innihald:85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon Grófleiki: Léttband 100g/224m Prjónastærð: 3.5mm – 4.5mm Fiða er undursamlega mjúkt og fallega loðið. Pínu villt …Tilvalið í sjöl, peysur, vettlinga… bæði sem aukaþráður og einn og sér. Innihald: 75% Brushed baby suri alpacca og 25% Mulberry Silki Grófleiki: Fisband (lace) 50g/300m Prjónastærð: 3mm – 5mm Merino Silki Fisband er undursamlega mjúkt og glóir eins og gull. Mikið notað sem aukaþráður líkt og mohair en líka dásamlegt eitt og sér í allt milli himins og jarðar. Ég er t.d. að nota þetta tvöfalt í ungbarnasett og held ég hafi bara ekki snert neitt dásamlegra. Géggjað í staðin fyrir mohair í peysuna Kusk til dæmis… og þá með Fínerí á móti. 75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki 100g/800m Grófleiki: fisband (lace) Prjónastærð: 2.5mm – 4mm Merino Silki singles er undursamlega mjúkt og fallega slétt og bústin áferð (ef það meikar sens). Fullkomið í hálsklút, sjal, peysu og bara allt milli himins og jarðar. Innihald: 75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki 100g/400m Grófleiki: fínband (fingering) Prjónastærð: 3mm – 4mm Merino Silki dk er undursamlega mjúk blanda af merino ull og silki. Falleg glansandi áferð. Fullkomið í peysur, sjöl, kraga, húfur og vettlinga. Garnið fellur sérstaklega vel og prjónast einskalega vel bæði í gataprjóni og tvíbanda. Tilvalið í peysur eins og Rakel, Fríðu og Valmúa svo eitthvað sé nefnt. 75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki 100g/225m Grófleiki: léttband (DK) Prjónastærð: 3.5mm – 4.5mm

Specifications
Veldu garntegund
Fínerí, Fínerí DK, Fiða, Merino silki fis, Merino silki singles, Merino silki DK

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

75%