Maí-Hespan – FORSALA

Maí-Hespan – FORSALA

SKU: MaiH
3990.00 ISK In stock Buy at Merchant

SALAN Á MAÍHESPUNNI FÓR FRAMAR ÖLLUM VONUM SVO ÉG ÁKVAÐ AÐ SETJA HANA AFTUR Í FORSÖLU Þú getur því tryggt þér hana í hvaða grunni sem er í næstu litun sem verður eftir 17.maí. Ég geri ráð fyrir því að senda hana út í síðasta lagi föstudaginn 22.maí. Fimmta litun af tólf árið 2026… allir mánuðir ársins fá sinn lit! Ég mun lita hvern mánuð á þremur garn grunnum…. VAR upprunalega planið! Fór í 4 grunna í febrúar og býð nú uppá 5 mismunandi garngrunna : Fínerí, Fínerí DK, Fiðu, Merino silki fisband og Merino silki singles (Sjá innihald hér fyrir neðan). Þú getur alltaf tryggt þér eintak hér í forsölu áður en hver mánuður fer í litun þar sem mánaðarhespurnar verða litaðar í takmörkuðu upplagi. Maí liturinn er innblásinn af gullfallegu Cherry blossom trjánum sem blómstra svo fallega á þessum tíma árs… var svo heppin að fara tvær ferðir til Bretlands síðustu tvo mánuði og seinni ferðin var hin fagra Edinborg þar sem þessi tré voru út um allt í fallegum blóma. Ég mun alltaf setja inn teikningu af hespu hvers mánaðar þegar forsala fer af stað svo þú hafir einhverja hugmynd um hvað þú ert að kaupa ef þú vilt vera alveg viss um að ná eintaki… eða þú getur beðið eftir myndum af hespunum tilbúnum og náð þér í eintak þá áður en þær klárast… Hespurnar verða sendar út/afhentar eigi síðar en 7.maí Fínerí er undurmjúk merínó ull í fínbands (fingering) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna. Innihald:85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon Grófleiki: Fínband 100g/400m Prjónastærð: 2.5mm – 4mm Fínerí DK er undurmjúk merínó ull í léttbands (Dk) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna. Innihald:85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon Grófleiki: Léttband 100g/224m Prjónastærð: 3.5mm – 4.5mm Fiða er undursamlega mjúkt og fallega loðið. Pínu villt …Tilvalið í sjöl, peysur, vettlinga… bæði sem aukaþráður og einn og sér. Innihald: 75% Brushed baby suri alpacca og 25% Mulberry Silki Grófleiki: Fisband (lace) 50g/300m Prjónastærð: 3mm – 5mm Merino Silki Fisband er undursamlega mjúkt og glóir eins og gull. Mikið notað sem aukaþráður líkt og mohair en líka dásamlegt eitt og sér í allt milli himins og jarðar. Ég er t.d. að nota þetta tvöfalt í ungbarnasett og held ég hafi bara ekki snert neitt dásamlegra. Géggjað í staðin fyrir mohair í peysuna Kusk til dæmis… og þá með Fínerí á móti. 75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki 100g/800m Grófleiki: fisband (lace) Prjónastærð: 2.5mm – 4mm Merino Silki singles er undursamlega mjúkt og fallega slétt og bústin áferð (ef það meikar sens). Fullkomið í hálsklút, sjal, peysu og bara allt milli himins og jarðar. Innihald: 75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki 100g/400m Grófleiki: fínband (fingering) Prjónastærð: 3mm – 4mm

Specifications
Veldu tegund
Fínerí, Fínerí DK, Fiða, Merino silki fisband, Merino silki singles

AI Readiness

Good foundation, but some important product data is still missing.

81%