Peysuprjón / 4 skipti / 8.-29. september

Peysuprjón / 4 skipti / 8.-29. september

Brand: Flóð og fjara
24900.00 ISK In stock Buy at Merchant

Langar þig að prjóna peysu í flæði, efla hugrekki þitt í handavinnunni og skapa þína eigin flík frá grunni? Á þessu námskeiði ætlum við að gera allt þetta í notalegu rými á þeim hraða sem þér hentar. Við ætlum að prjóna peysu innan ákveðins ramma og eftir grunnaðferð, stíga inní hugrekkið, kveikja á hugmyndafluginu í litavali, flæði og gleði. Þú velur þína eigin liti og stærð en færð leiðbeiningu og hvatningu með allt annað. Við prjónum peysuna fram og til baka í 4-5 hlutum (fer eftir því hvort þú vilt hafa hana opna eða lokaða) og lykkjum svo hlutana saman. Það er nóg að kunna slétt prjón, kostur að kunna brugðið líka. Byrjendur & upprifjendur fá kennslu í prjóni. Í lokin lykkjum við saman annað hvort með nál eða heklunál. Þau sem þurfa fá kennslu í því. Á milli þess sem við hittumst fá þátttakendur send kennslumyndbönd sem styðja við og hjálpa á þeim stað sem þið eruð stödd. Við hittumst einu sinni í viku í 4 vikur í 2 tíma í senn og náum þannig að mynda gott samfélag og aðhald okkar á milli en engin pressa er þó á að klára ákveðna hluti fyrir ákveðinn tíma. Allir þátttakendur fá tæki og tól til þess að ná að klára sína peysu á sínum hraða. Hugmyndin byggist á því að vinna með afgangsgarn eða það garn sem þú átt heima en auðvitað er velkomið að kaupa nýtt garn sérstaklega fyrir verkefnið. Það verður auka afgangsgarn á staðnum til að nota með og bæta við en þátttakendur útvega uppistöðu garnið í sínu verki og koma með sína eigin prjóna. Mælt er með 60 eða 80 cm hringprjónum í stærð 6-12. Velkomið að eiga samtal um hentuga prjónastærð miðað við garnóskir áður en námskeiðið hefst. Allir þátttakendur fá 15% afslátt í verslun Flóðs & fjöru á meðan námskeiðinu stendur. Svo ef þig vantar prjóna eða annað er hægt að bæta úr því í fyrsta tíma. Námskeiðið hentar vel fyrir bæði byrjendur og lengra komna og er þetta einstakt tækifæri til þess að njóta handavinnunnar í flæði og sköpun. Við hittumst þriðjudagana: 8., 15., 22. og 29. september. Klukkan 18:00 - 20:00 Verð: 24.900 kr. (velkomið að hafa samband til að skipta greiðslum) Leiðbeinandi er Hera Sigurðardóttir eigandi Flóðs & fjöru.

Variants (1)
  • Default Title — 24900.00 ISK — In stock

AI Readiness

Good foundation, but some important product data is still missing.

83%