Náttfatapartý: Paddington
RIFF ásamt UngRIFF býður fjölskyldum í ógleymanlega bíóferð. Háskólabíói verður umturnað í risastórt og huggulegt náttfatapartý þar sem börn og fullorðnir geta upplifað hina ástsælu kvikmynd um bangsan Paddington í samnefndri kvikmynd frá árinu 2014 sem hlaut einmæla lof gagnrýnenda fyrir að henta áhorfendum á öllum aldri. Til að skapa hina fullkomnu stemningu hvetjum við alla yngri gestina til að mæta í náttfötunum og taka uppáhalds bangsann sinn með. Salurinn verður skreyttur á töfrandi hátt með teppavirki, púðum og pullum – að auki verður tilboð á kaffi fyrir foreldrana til þess að byrja daginn rétt. Kynnir sýningarinnar er leikarinn Siggi Þór, sem fer jafnframt með hlutverk Paddington í íslensku talsetningunni, og mun hann tryggja einstaka upplifun fyrir yngri kynslóðina. Myndin verður sýnd með íslensku tali. Barnamiði er fyrir 12 ára og yngri og fjölskyldumiði er fyrir fjóra einstaklinga (óháð aldri).
Specifications
- Miðar
- Fullorðinsmiði, Barnamiði, Fjölskyldupakki
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.