Esja - ungbarnasett
Esja ungbarnasettið samanstendur af peysu, buxum og húfu. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka með laskaútaukningum. Tölu- og hnappagatalistar eru prjónaðir eftir á. Buxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður með upphækkun að aftan fyrir litla bossa. Húfan er þessi venjulega hjálmhúfa. Á öllu er einfalt en fallegt mynstur, samsett úr sléttum og brugðnum lykkjum. Stærðir: fyrirburi (0 – 3 mán) 3 – 6 mán (6 – 9 mán). Garn: Merinoull frá Knitting for Olive (50 g = 250 m). Fæst hjá Garn í gangi á Akureyri. Garnmagn: 150 (150) 150 (150) g í allt settið. Prjónar: 3 mm hringprjónar og sokkaprjónar. 2,5 mm prjónar í tölu – og hnappagatalista á peysu. Prjónfesta: 28/10 slétt prjón (28 lykkjur á 10 cm) á 3 mm prjóna. Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.
Variants (1)
- Default Title — 1550.00 ISK — In stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.