Sjöan - barnapeysa

Sjöan - barnapeysa

Brand: Litli prins
763.00 ISK In stock Buy at Merchant

Peysan er prjónuð ofan frá og niður. Fyrst er bakstykki prjónað fram og til baka að handvegi. Svo er hvort axlarstykki fyrir sig prjónað, einnig fram og til baka, áður en þau eru sameinuð í eitt framstykki og prjónuð þannig niður að handvegi. Þá eru stykkin tvö tengd saman og peysan prjónuð í hring með mynstri niður allan bolinn. Ermalykkjur eru teknar upp við handveginn og ermin prjónuð í hring ofan frá og niður. Í lokin eru teknar upp lykkjur meðfram hálsmáli og hálslíningin prjónuð. Hér er hægt að sjá myndband af því hvernig ermalykkjur og lykkjur við hálsmál eru teknar upp. Í tvílitu mynsturprjóni er mikilvægt að ákveða hvor liturinn á að vera ríkjandi og hvor á að vera víkjandi, og halda böndunum alltaf eins yfir fingurinn. Ríkjandi litur liggur nær þér (innar á fingrinum) en víkjandi er fjær (framar á fingrinum). Í peysunni á myndinni var ég með græna litinn sem ríkjandi lit. STÆRÐIR 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8-10, 11-13 ára UMMÁL BOLS 62, 65, 69, 71, 73, 76, 80, 84, 91 cm GARN My Time Merino frá Gabo Wool (50 gr = 230 mtr) prjónað tvöfalt. Litur A (aðallitur): 200, 200, 250, 250, 300, 300, 300, 350, 400 gr. Litur B (mynstur): 50, 50, 100, 100, 100, 100, 100, 100, 150 gr. Einnig er hægt að nota einfaldan þráð af Fine Merino frá Gabo Wool (50 gr = 105 mtr) PRJÓNAR Hringprjónar # 3,5 og 4,0 (lengd valfrjáls) Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0 PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI 22 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf) ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA Prjónamerki Skæri, nál

Variants (1)
  • Default Title — 763.00 ISK — In stock

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

78%