Meistaraspjall: Hjartað í hasarnum
Háskólabíó 26. september, kl 18:30 Hjartað í hasarnum með David Leitch, Kelly McCormick og Elísabetu Ronaldsdóttur. Hvernig er hasaratriði í samtímakvikmynd í raun byggt upp? Í þessu meistaraspjalli mætast sjónarhorn leikstjórans, framleiðandans og klipparans og ferlið er krufið frá fyrstu hugmynd að endanlegri útgáfu. Með sýningu valinna brota – þar á meðal, með fyrirvara, atriða úr nýjustu mynd þeirra – How to Rob a Bank – rekja fyrirlesararnir hvað er útfært fyrir tökur, hverju er breytt á tökustað og hvaða úrlausnir verða til við klippingu. Jafnframt verður skoðað hvernig hrynjandi, húmor, persónusköpun og sjónarspil eru fléttuð saman í áhrifaríka heild. Meistaraspjallið veitir einstaka innsýn í gerð hasarmynda sem samvinnulist, þar sem ólíkar skapandi greinar vinna saman, fremur en verk eins fagteymis eða stakt áhættuatriði. Meistaraspjall-pakkinn inniheldur miða á Meistaraspjallið ásamt sýningum á Atomic Blonde og Bullet Train.
Specifications
- MIÐA
- Meistaraspjall miði, Meistaraspjall pakki
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.