Aereo・Eau de Parfum

Aereo・Eau de Parfum

Brand: Pigmentarium
SKU: PIG-AEREO
28990.00 ISK In stock Buy at Merchant

Yfirnáttúrulegur en um leið jarðbundinn ilmur. Innblásinn af Prag og elstu heimildum um súrefni, sem þá var nefnt „Aereo Nitro“. Aereo er afturhvarf, ilmur sem byggir á einbeitingu, ró og innri heilindum. Hann sprettur af þeirri sannfæringu að verðmæti okkar ráðist ekki af augum annarra heldur búi innra með okkur. Samsetning ilmsins er unnin á afar nútímalegan máta og þróast á fíngerðan hátt með tímanum. Kjarninn er mjúkt, nánast áþreifanlegt cashmeran, þar sem steinefnakennd dýptin minnir á ylvolga mold eftir rigningu. Léttur keimur af bleikum pipar veitir birtu og tærleika, á meðan róandi myrra bindur ilminn með hreinum, næstum hugleiðslukenndum blæ. Cashmeran, bleikur pipar, myrra Prag, Tékkland Upplýsingar — Stærð: 50 ml — Ilmvatnið hentar öllum kynjum. — Spreyið á háls og úlnlið eftir þörfum. — Haldið ilmvatninu frá augum, munni, börnum og dýrum. PIGMENTARIUM Pigmentarium er fyrsta stjálfstæða ilmvatnshúsið í Tékklandi sem kynnti frumraun sína í Prag haustið 2018 með ilmvatni að nafni AD Libitum. Vörumerkið er undir sterkum áhrifum frá ungu kynslóðinni sem hefur tengsl við listheiminn ásamt lífsstíl Tékklands á fyrri hluta tuttugustu aldar. Ilmvatnssafn Pigmentarium stækkar ár frá ári og samanstendur af hágæða ilmum með áherslu á handverk, sjálfbærni og náið samstarf við lítil, að mestu staðbundin, fjölskyldurekin fyrirtæki.

Variants (1)
  • Default Title — 28990.00 ISK — In stock

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

84%