BLUETTI Kælir, frystir og klakavél

BLUETTI Kælir, frystir og klakavél

Brand: Bluetti
SKU: BLU-Kælir,frystir,klakavel
159900.00 ISK In stock Buy at Merchant

BLUETTI FERÐAKÆLIR, FRYSTIR OG KLAKAVÉL Orka og kæling á ferðinni Hvort sem þú ert á vikuferðalagi eða býrð utan rafkerfis, þá heldur BLUETTI tækjunum þínum gangandi, matnum ferskum og drykkjunum ísköldum — á hagkvæman og sjálfbæran hátt. Rafhlaða er ekki innifalið, en hægt er að nota kælinn án rafhlöðu. Þú færð B70 rafhlöðuna hér Endingargóð rafhlaða, lengra ævintýri (ekki innifalin í verði á kæli) Hvort sem þú ert í útilegu í óbyggðum eða á ferðalagi fjarri rafmagni, þá getur B70 rafhlaðan (aukabúnaður), með 716,8 Wh hleðslu, veitt allt að 3 daga samfellt afl fyrir BLUETTI ferðakælirinn. Með tveimur rafhlöðum geturðu lengt ferðalagið í allt að 6 daga án þess að komast í annað rafmagn. Auðvitað er hægt að tengja BLUETTI ferðakælinn við 12/24V, 220 Volt eða sólarorku. Og ef þú ert með B70 rafhlöðuna, geturu hlaðið hana með tengingu við rafmagn. Þú færð B70 hér Alltaf tilbúinn til að slaka á og fríska þig upp Hvort sem þú ert að leggja af stað í helgarferð utan, keyra um í húsbílnum, takast á við torfærur eða halda bestu bílastæðaveislu allra tíma, þá er BLUETTI ferðakælirinn tilbúinn í allt. Fjölhæfur, einstök hönnun, úr endingargóðu efni og frábær afköst gera hann að fullkomnum félaga í hvaða ævintýri sem er. 3-í-1 Bluetti ferðakælirinn Hannaður til að lyfta útiverunni á hærra plan: BLUETTI ferðakælirinn er blanda af ísskáp, frysti og klakavél. Með honum eru möguleikarnir endalausir. Haltu drykkjunum ísköldum, geymdu frysta smárétti eða búðu til ísmola fyrir uppáhaldsdrykki – allt í einni græju! Fljótasta kælingin BLUETTI ferðakælirinn er búinn öflugasta búnaði til kælingar, sem tryggir hámarks kælingu — kælir úr 30°C niður í 0°C á aðeins 15 mínútum! Innbyggðir USB-A og 100W USB-C tengi BLUETTI ferðakælirinn gerir þér kleift að hlaða síma, spjaldtölvu eða fartölvu auðveldlega á ferðinni, með USB og USB-C tengunum Stjórnun og eftirlit Með BLUETTI appinu hefurðu fulla stjórn á orkunni. Fylgstu með raunverulegri orkunotkun, athugaðu stöðu kælisins, stilltu eigin valkosti og framkvæmdu uppfærslur á hugbúnaði – allt í símanum þínum. Hannaður fyrir auðvelda flutninga Festu kælinn við farartækið á ferð, færðu hann að tjaldsvæðinu með sterkum handfangi og hjólum og opnaðu lokið til að ná fljótt í veitingarnar. Með 45° hallaöryggi helst hann stöðugur á ójöfnu yfirborði. BLUETTI kælirinn er einnig mjög hljóðlátur og hentar því vel í útilegur, lautarferðir og útiveislur. TÆKNIUPPLÝSINGAR UPPLÝSINGAR UM RAFHLÖÐU Rafhlöðustærð: 716,8 Wh Gerð: LiFePO₄ Ending: 3.000+ hleðslulotur Geymsluþol: Endurhlaða í 40%-60% á 3–6 mánaða fresti Stýringarkerfi: BLUETOPUS AI-BMS Athugið: Upplýsingarnar hér að ofan eiga við um B70 rafhlöðupakkann, sem fylgir ekki með MultiCooler. ÚTTÖK USB-C tengi: 1 x 100W max USB-A tengi: 1 x 15W ALMENNT Rúmmál kæliskáps: 50qt / 55L samtals Kælihólf: 42qt / 40L Ísmaskínhólf: 9,5qt / 9L Rafhlöðuhólf: 6,3qt / 6L Stærð: 710 x 420 x 475 mm (án hjóla og handfangs) Þyngd: 24 kg Hljóð: 30 dB (í kæliham) 45 dB (í ísgerðaham) Ábyrgð: 2 ár

Variants (1)
  • Default Title — 159900.00 ISK — In stock

AI Readiness

Good foundation, but some important product data is still missing.

86%