Organic Extra Virgin Olive Oil Pèppoli Chianti Classico DOP 500 ml
Lífræn Ólífuolía 500 ml. Pèppoli DOP Chianti Classico lífræn extra virgin ólífuolía frá Antinori er framleidd á Pèppoli landareigninni í Chianti-héraði, skammt frá San Casciano Val di Pesa, í 300–350 metra hæð yfir sjávarmáli. Landareignin spannar um 100 hektara, þar af eru 27 hektarar ræktaðir undir ólífulundum. Þar vaxa meðal annars aldagömul ólífutré af afbrigðunum Frantoio, Leccino og Moraiolo. Ólífurnar eru handtíndar og pressaðar innan 12 klukkustunda frá uppskeru til að tryggja hámarks ferskleika og gæði olíunnar. Þær eru pressaðar með hefðbundnum steinkvörnum. Olían einkennist af framúrskarandi bragð- og ilm eiginleikum, góðri fyllingu og jafnvægi, ásamt áberandi pipar kenndu eftirbragði sem er einkennandi fyrir ólífuolíu frá Toscana.
Variants (1)
- Default Title — 3990.00 ISK — In stock
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.