Auðný, peysan hennar Auðar
Dásamlega mjúk og falleg rétt eins og Auður mín 😊Einföld að prjóna og passar við allt, must í fataskápinn. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, það eru stuttar umferðir í hálsmálinu. Peysan er auðveld í vinnslu og fljótprjónuð. Hún er gefin upp með einum þræði af Pascuali baby merinoull og einum þræði af Mohair Bliss. Það er lítið mál að skipta út mohair fyrir til dæmis Alpaca lace ef þú ert ekki mohair týpan. Ef þú notar annað en uppgefið garn, mæli ég með að sannreyna prjónfestu. Athugið að ég gef upp metra í mohair bliss ef þú vit skipta yfir í Alpaca lace. Þú velur þína stærð eftir því hvað þér hentar að hafa hana lausa/víða en uppgefið mál er á peysunni tilbúinni . Stærð: XS, S, M, L, XL, 2XL, 3XL, 4XL Ummál í cm: 98,100, 109, 113, 118, 130, 140, 147 Tillögur að garni: Pascuali baby merino ásamt 1 þræði að mohair bliss, garnið fæst hjá versluninni Rendur á Sauðárkrók eða í vefverslun www.rendur.is Magn í gr, merino baby : 250, 250, 300, 350, 350, 400, 450, 450 Magn í METRUM: Mohair bliss, 900 ,900 1200 ,1200 , 1500 , 1500, 1800, 1800 Prjónafesta: 18/10 á prjóna nr. 4,5 Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka Reikningsupplýsingar : 0123 - 26 - 201091 og Kennitala: 010865 - 3369 Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugið þar
Variants (1)
- Default Title — 1200.00 ISK — In stock
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.