RISOPRENT námskeið - Jólakort / merkimiðar

RISOPRENT námskeið - Jólakort / merkimiðar

Brand: Farvi
15900.00 ISK In stock Buy at Merchant

Kynnstu töfraheimi risoprents á aðventunni með því að setja saman jólakort og jólamerkimiða með úrklippuaðferð. Verkið er svo prentað með risoprent aðferðinni og þú tekur með heim 20 stykki af þinni vinnu í tveimur litum. Engar tölvur - bara þú, jólagleði, hendur þínar og hugur sem sleppa sköpunarkraftinum lausum. Vinnubúðirnar: - Stutt kynning á riso og vinnsluaðferðum við tveggja lita analog prent. - Við tökum svo fram skærin, límstiftið og alls kyns efni og þið setjið saman ykkar eigið jólakort/merkimiða með kolum, bleki, tússi, ljósmyndum, letri o.fl. Við verðum ykkur innan handar í ferlinu og það eru engar reglur. - Prentum jólakortin/merkimiðana ykkar í 20 eintökum, í tveimur litum að ykkar vali. Athugið: Farvi skaffar allt efni en það er velkomið að koma með eigið útprentað efni (gæti verið gaman að koma með ljósmynd ef þið viljið hafa þess háttar á jólakortinu eða aðra jólalega grafík) en passa þarf að hafa það ekki stærra en A4 og ekki á stafrænu formi. Tölvupóstur er sendur út til þátttakenda með nánari upplýsingum daginn fyrir námskeið. Námskeiðið hentar byrjendum sem og lengra komnum. Staðsetning: Farvi , Álfheimar 4, 104 Reykjavík Fjöldi þáttakenda: 6-8 Tímasetning: Klukkan 18.00 (þriðjudagar og fimmtudagar) / klukkan 11.00 (laugardagur) Lengd: +/- 3 klukkustundir Verð: 15.900 kr. Afbókun/endurgreiðsla: Til að fá námskeið endurgreitt að fullu þarf að afbóka fimm dögum fyrir námskeið - annars er endurgreitt að helming. Breyting á dagsetningu: Breytingagjald þegar námskeið er flutt á milli dagsetninga er 1.500 kr. en 3.500 kr. ef það er gert innan við tveimur dögum fyrir námskeið. Vinnubúðirnar eru einnig tilvaldar fyrir vina- og vinnustaðahópa til að koma saman og gera eitthvað skemmtilegt og skapandi sem skilur eftir góðar minningar. Fyrir nánari upplýsingar, hópapantanir eða aðrar dagsetningar hafið samband í síma 546 8225 eða mamma@farvi.is. "Dóttir mín er mikil listakona og hana langaði að prófa nýjar aðferðir við að þróa listaverkin sín. Við ákváðum því að skella okkur mæðgurnar saman til Farva á Riso workshop. Þetta var alveg meiriháttar kvöldstund sem við ætlum klárlega að endurtaka. Það sem var meiriháttar: Heimilislegur andi og nánast einkakennsla og leiðsögn í tækninni þar sem hópurinn var ákkúrat ekki of stór né lítill. Svo er bara svo langt síðan ég hef gefið mér tíma til að staldra við og teikna - eitthvað sem ég ætti að gera meira af." Þórhildur Laufey Sigurðardóttir - grafískur hönnuður

Specifications
Dagsetning
24. nóvember 2026 - jólakort / merkimiðar, 3. desember 2026 - jólakort / merkimiðar
Variants (2)
  • 24. nóvember 2026 - jólakort / merkimiðar — 15900.00 ISK — In stock
  • 3. desember 2026 - jólakort / merkimiðar — 15900.00 ISK — In stock

AI Readiness

Good foundation, but some important product data is still missing.

72%