Skycamp 4.0 Duo
Skycamp 4.0 Duo er hannað fyrir þá sem vilja alla Skycamp upplifunina í nettari og þéttari stærð. Það hentar sérstaklega vel fyrir minni bíla, pallbíla með styttri palli eða aðrar uppsetningar þar sem festingapláss er takmarkað. Svefnpláss fyrir 2. Eins og með öll Skycamp tjöld er uppsetningin fljótleg og einföld. Þú opnar tjaldið á örfáum sekúndum og færð strax þægilegt svefnrými tilbúið til notkunar. Stærri inngangur og gluggar bæta loftflæði og gera aðgengi inn og út auðveldara, á meðan vel útfærð smáatriði láta tjaldið virka fullkomlega frá fyrstu nóttu. Að innan er Duo hagkvæmt í hönnun án þess að vera þröngt. Það hentar einstaklingsferðalöngum eða pörum sem vilja hreina og einfalda uppsetningu sem er samt þægileg eftir heilan dag utandyra. Ef þú vilt tjald sem passar á fleiri gerðir ökutækja og virkar vel þar sem pláss er takmarkað, þá er Duo rétti kosturinn. 4.0 uppfærslurnar eru einnig til staðar hér: RTT Comfort loftdýna með innbygðum 7,5cm svampi. Svefngæði eins og þau gerast best. BreathWeave™ tjaldúkurinn hjálpar til við að minnka raka og viðhalda þægindum við mismunandi aðstæður og árstíðir. Einnig verðum við að minnast á að tjaldið sjálft er mjög hljóðlátt í vindi. Ekki síst vegna DuraCore™ harðskeljarinnar með tvöföldu lagi af einangrun. Skelin er byggð fyrir endingu og hönnuð til að takast á við krefjandi aðstæður og hitabreytingar. Einnig er botninn í 4.0 Duo einangraður með sérstökum ThermaSeal™ kork klæðningu sem einnig kemur í veg fyrir rakamyndun og bætir hljóðvist inn í tjaldinu. Innbyggð lýsing er í tjaldinu með mismunandi stillingum og stemningu. IKAMPER Hannað af ásetningi. Byggt til að endast.
Variants (1)
- Default Title — 699900.00 ISK — In stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.