Glúmur – útistóll úr Douglasgreni
Glúmur útistóll er sterkur og vandaður tréstóll með krossfótum sem gefa honum bæði styrk og sérstakt yfirbragð. Stóllinn er smíðaður úr þykkum plönkum sem tryggja trausta og fallega uppbyggingu og fæst bæði úr Douglasgreni og eik. Viðurinn gefur stólnum hlýlegt og náttúrulegt yfirbragð sem fellur vel að pallinum, garðinum eða sumarhúsinu. Douglasgrenið er fúvarið og kemur með hlýlegum brúnum lit á meðan eikin er ljósari og mjög þéttur harðviður sem fær með tímanum fallega gráa áferð. Hægt er að viðhalda litnum með olíu eða leyfa viðnum að þróast með náttúrulegri áferð. Glúmur stóll passar fullkomlega með Glúmur garðbekkjum og fellur einnig vel að borðsettum eins og Unni, Sif og Bolla. Sama hönnun og efnisval skapar heilsteypt og vandað útirými þar sem form og hlutföll tala saman. Þetta er þungur og stöðugur útistóll sem fýkur ekki og er hannaður til að standa úti allt árið í íslenskum aðstæðum. Helstu kostir Útistóll úr Douglasgreni eða eik Krossfætur og þægilegur halli á baki Þykkir plankar og massív smíði Fúvarið Douglasgreni eða ljós eik Þungur og stöðugur – fýkur ekki Passar með borðsettum eins og Unni, Sif og Bolla Glúmur útistóll er hluti af Glúmur línunni þar sem áhersla er lögð á styrk, einfaldleika og norrænt handbragð í útihúsgögnum sem endast árum saman.
Specifications
- Veldu viðartegund
- Douglasgreni, Eik
Variants (2)
- Douglasgreni — 85000.00 ISK — In stock
- Eik — 110500.00 ISK — Out of stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.