Bókabíó: Pride & Prejudice
Háskólabíó 28. september, kl 19:30 Bókabíómynd RIFF í ár er Pride and Prejudice, sem fór sigurför um heiminn þegar hún var frumsýnd árið 2005 og nýtur enn mikilla vinsælda. Líkt og skáldsagan sem hún er byggð á hefur kvikmyndin, í leikstjórn Joe Wright, öðlast sess sem tímalaus klassík. Kvikmyndin hlaut fjórar Óskarstilnefningar, þar á meðal Keira Knightley fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Elizabeth Bennet. Sýningin er haldin í samstarfi við Aðdáendaklúbb Jane Austen á Íslandi og Kristín Linda Jónsdóttir, sálfræðingur og formaður klúbbsins, segir frá Jane Austen: Hvernig stendur á því að verk hennar höfða til fólks enn í dag? Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur og þýðandi Hroka og hleypidóma fjallar um verkið. Gestum er boðið freyðivín við upphaf sýningar. Komdu og skálaðu með okkur fyrir einni bestu ástarsögu allra tíma – og njóttu töfra Pride and Prejudice á hvíta tjaldinu. Vinsamlegast athugið að samtalið á millu Kristínu og Silju verður á íslensku.
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.