M1: Sílesandi blóðsykursmælir

M1: Sílesandi blóðsykursmælir

Brand: ULTRAHUMAN
SKU: M1
26990.00 ISK Out of stock Buy at Merchant

ULTRAHUMAN blóðsykursmælirinn hjálpar þér að sérsníða mataræðið þitt að þínum líkama! Ultrahuman M1 er sílesandi blóðsykursmælir sem mælir blóðsykurinn þinn allan sólarhringinn í 14 daga samfellt. Skynjarinn les glúkósa í millifrumuvökva undir húðinni og sendir mælingarnar jafnóðum í Ultrahuman appið, þar sem þú sérð þær og getur skráð máltíðir og hreyfingu með. Lærðu inn á þinn líkama, engir tveir eru eins! Enduruppgötvaðu næringu og hvaða matvæli henta þínum líkama best Sjáðu hvernig máltíðir og daglegar venjur koma fram í mælingunum Fylgstu með þróuninni yfir alla 14 dagana UPPGÖTVAÐU ÞÍN VIÐBRÖGÐ Það er ekki aðeins eitt mataræði sem hentar öllum. Við erum öll einstök með mismunandi næringarþarfir og mismunandi getu til að vinna úr matvælum. M1 mælirinn sýnir þér hvernig þinn líkami bregst við mismunandi matvælum. Þannig getur þú sérsniðið mataræðið þitt að þínum líkama út frá þínum eigin mælingum. MATARÆÐI Sami maturinn kemur ekki eins fram hjá öllum. Því meira sem þú veist hvernig þinn líkami bregst við hinum ýmsu fæðutegundum, því betur getur þú valið það sem hentar þér. ORKA Margir nota M1 til að sjá samhengið milli daglegra venja og þess sem mælingarnar sýna, og til að prófa sig áfram með mat og hreyfingu. M1 er heilsu- og lífsstílsvara, ekki lækningatæki. Hann er ekki ætlaður til greiningar eða meðferðar og kemur ekki í stað ráðgjafar heilbrigðisstarfsfólks.

Variants (1)
  • Default Title — 26990.00 ISK — Out of stock

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

89%