Prjónanámskeið fyrir byrjendur / 23. júní
Langar þig að læra að prjóna eða vantar þig að fá upprifjun til að geta byrjað aftur? Vertu með í litlum hópi þar sem við lærum grunninn í prjóni, slétt & brugðið, svo þú getir hafist handa við að prjóna það sem þú vilt, peysur, húfur, vettlinga, teppi... Dagsetning: 23. júní Tími: 17:30-19:30 Verð: 11.900 kr. Innifalið er kennsla, prjónar, garn Námskeið hentar vel fyrir byrjendur & upprifendur. Hlýr tebolli og hugguleg stemning. Kennari Hera Sigurðardóttir. Sköpun og handavinna eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín. Afbókunarskilmálar á námskeið Ef afbókað er með meira en tveggja sólarhringa fyrirvara fæst skráningagjaldið endurgreitt. Ef afbókað er innan eins sólarhrings fæst skráningagjaldið ekki endurgreitt. Alltaf velkomið að hafa samband og athuga hvort önnur dagsetning henti sé þess óskað.
Variants (1)
- Default Title — 11900.00 ISK — In stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.