Mylla mömmupeysa
Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður með útaukningum sem falla inn í mynstrið. Mynstrið er prjónað á öllu berustykkinu en ermar og bolur eru slétt. Neðst á bol eru gerðar stuttar umferðir á bakstykkinu og klauf er í sitt hvorri hliðinni í stroffinu. Ermalykkjur eru geymdar á meðan bolur er prjónaður og þær svo prjónaðar hvor í sínu lagi. Uppgefin mál í uppskriftinni eru ummál flíkurinnar, taktu þá stærð sem er u.þ.b. 10-12 cm. víðara en brjóstmálið þitt. STÆRÐIR XXS – XS – S – M – L – XL – 2XL – 3XL UMMÁL BOLS XXS: 93 – XS: 98 – S: 101 – M: 109 – L: 115 – XL: 120 – 2XL: 128 – 3XL: 131 cm GARN Fog frá Gabo Wool (50 gr=125 mtr) sem fæst hja vetrargarn.is 300 – 300 – 350 – 400 – 450 – 450 – 500 - 500 gr Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst. PRJÓNAR Hringprjónn 40-60 cm, # 4,5 og 5,0 Sokkaprjónar # 4,5 og 5,0 PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI 16 L og 25 umf = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf) ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA Prjónamerki Hjálparband eða nælur Skæri, nál
Variants (1)
- Default Title — 1090.00 ISK — In stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.