Tvennusýning með Sigurjóni Sighvatssyni: Twin Peaks og Wild at Heart
Háskólabíó 25. september, kl 20:30 Í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá stofnun hins goðsagnakennda framleiðslufyrirtækis Propaganda Films býður RIFF til einstakrar tvennusýningar á tveimur tímamótaverkum David Lynch: hinum 94 mínútna langa upphafsþætti Twin Peaks og Gullpálmaverðlaunamyndinni Wild at Heart. Verkin komu út með aðeins fárra vikna millibili vorið 1990 og mörkuðu tímamót í kvikmynda- og sjónvarpssögunni. Twin Peaks umbylti sjónvarpsmiðlinum og vakti spurninguna sem hélt milljónum áhorfenda hugföngnum: Hver myrti Lauru Palmer? Wild at Heart er óviðjafnanleg blanda vegamyndar, ástarsögu, suðurríkjagotneskunnar og biksvarts húmors, borin uppi af einstakri sýn Lynch. Wild at Heart verður sýnd í glæsilegri nýrri 4K-endurvinnslu, unninni úr upprunalegu 35 mm filmunum undir handleiðslu kvikmyndatökustjórans Frederick Elmes og með samþykki David Lynch Family Trust. Framleiðandinn Sigurjón Sighvatsson verður viðstaddur sýninguna og gefst gestum því einstakt tækifæri til að upplifa þessi áhrifamiklu verk í návígi við einn af lykilmönnum þeirra. Aðeins verður um þessa einu sýningu að ræða og takmarkað magn miða er í boði.
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.