Kvenhetjan (015)
Kvenhetjan á rætur að rekja til ársins 1990, þegar Steingrímur Eyfjörð fékk Lindu Björgu Árnadóttur hönnuð til að safna fyrir sig myndum af kvenhetjum. Myndasafnið varð upphaf að verki sem þróaðist út frá hugmyndum um fyrirmyndir, sjálfsmynd og þær samfélagslegu kröfur sem móta einstaklinginn. Á þessum tíma varð Steingrímur var við vaxandi kröfu um að einstaklingurinn þyrfti ekki aðeins að selja vinnu sína heldur einnig sjálfan sig, persónuleika, ímynd og framkomu. Kvenhetjan varð leið til að skoða hvernig slíkar hugmyndir og fyrirmyndir verða til og hvaða áhrif þær hafa á það hvernig við mótum og setjum fram eigin sjálfsmynd. Árið 2016 sneri Steingrímur aftur að myndefninu sem safnað hafði verið árið 1990 og vann áfram með það með athugasemdum, tilvitnunum og breytingum á myndunum sjálfum. Verkið tengir þannig saman ólík tímabil og spyr um samband einstaklingsins við þær ímyndir og fyrirmyndir sem samfélagið skapar, og möguleika hans til að móta sjálfur eigin framtíð. Steingrímur Eyfjörð (f. 1954) er meðal hinna fremstu í þeirri kynslóð íslenskra listamanna sem fram kom á áttunda áratugi síðustu aldar. Í vinnu sinni nýtir hann sér fjölbreytta miðla, þar á meðal ljósmyndun, teiknimyndir, myndbönd, málun, skúlptúra, gjörningalist, skrif og innsetningar. Efnisvalið er álíka fjölbreytt; hann sækir innblástur í jafn ólíkar áttir og þjóðsögur, Íslendingasögur, tískutímarit, trúarbrögð, hjátrú, krítíska teoríu og margs konar annað efni úr samtímanum, í meðförum hans skarast þau á margræðum tengipunktum þannig að úr verða marglaga verk, á stundum rugla þau mann í ríminu en í þeim birtist ævinlega skýr og óvænt sýn á þau viðfangsefni sem unnið er með. Steingrímur var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2007.
Specifications
- Efni / Tækni
- Prent
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.