Sólveigar peysa
Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður með útaukningum í laska. Að loknum útaukningum eru ermalykkjur geymdar á meðan bolurinn er prjónaður. Þær eru svo settar aftur á prjóninn og ermarnar prjónaðar hvor í sínu lagi. Hálsmálið er hækkað með stuttum umferðum sem prjónaðar eru strax að loknu stroffi. Aðferðin er útskýrð vel í uppskriftinni. Í tvílitu mynsturprjóni er mikilvægt að ákveða hvor liturinn á að vera ríkjandi og hvor á að vera víkjandi, og halda böndunum alltaf eins yfir fingurinn. Ríkjandi litur liggur nær þér (innar á fingrinum) en víkjandi er fjær (framar á fingrinum). Í gulu og hvítu peysunni á forsíðumyndinni var ég með hvíta litinn sem ríkjandi lit. STÆRÐIR 6-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára / 4 ára / 5 ára / 6 ára / 7 ára / 8 ára UMMÁL BOLS 54 / 60 / 60 / 65 / 65 / 71 / 71 / 76 / 76 cm eftir þvott og þurrk GARN Mellow frá Ullen Yarns (50 g.= 125 m. – Fæst hjá vetrargarn.is ) eða það garn sem passar prjónafestunni. Litur A (gulur á mynd): 100 / 150 / 150 / 200 / 200 / 200 / 250 / 250 / 250 gr. Litur B (hvítur á mynd): 100 / 100 / 100 / 150 / 150 / 200 / 200 / 200 / 250 gr. Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst. PRJÓNAR Hringprjónn 40-60 cm, #3,5 og 4,0 Sokkaprjónar #3,5 og 4,0 PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI eftir þvott og þurrk 22 L = 10 cm (sannreynið prjónafestu og breytið um prjónastærð ef þarf) ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA Nokkur prjónamerki Hjálparband eða næla Skæri, nál
Variants (1)
- Default Title — 1090.00 ISK — In stock
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.