Yndisauki
Yndisauki er litun þar sem hver litur er einstakur og verður ekki endurtekinn. Ég kalla þessar hespur Yndisauka þar sem ég fæ að lita mér til yndisauka án allra hamlana eins og að þurfa að mæla og skrifa niður… ég fæ bara að mála frjálst á hespurnar. Ég vona að það sé ykkur jafn mikill yndisauki og það er mér. Hver hespu hópur sem var litaður í sama potti fær sitt númer til aðgreinibgar en það þýðir þó ekki að hver hespa innan þess númers sé nákvæmlega eins… það er einfaldlega ekki hægt og ekki tilgangur þessarar litunar. Það sem er til núna eru þrjár mismunandi tegundir af garni sem allt er merkt inná mynd hvers litar og upplýsingar um garnið hér fyrir neðan. Fínerí er undurmjúk merínó ull í fínbands (fingering) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna. Innihald:85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon Grófleiki: Fínband 100g/400m Prjónastærð: 2.5mm – 4mm Skoða Fínerí Merino Silki Fisband er undursamlega mjúkt og glóir eins og gull. Mikið notað sem aukaþráður líkt og mohair en líka dásamlegt eitt og sér í allt milli himins og jarðar. Ég er t.d. að nota þetta tvöfalt í ungbarnasett og held ég hafi bara ekki snert neitt dásamlegra. Géggjað í staðin fyrir mohair í peysuna Kusk til dæmis… og þá með Fínerí á móti. 75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki 100g/800m Grófleiki: fisband (lace) Prjónastærð: 2.5mm – 4mm Skoða Merino silki fisband Merino Silki singles er undursamlega mjúkt og fallega slétt og bústin áferð (ef það meikar sens). Fullkomið í hálsklút, sjal, peysu og bara allt milli himins og jarðar. Innihald: 75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki 100g/400m Grófleiki: fínband (fingering) Prjónastærð: 3mm – 4mm Skoða Merino silki singles
Specifications
- Veldu lit
- Yndisauki #11, Yndisauki #2, Yndisauki #3, Yndisauki #4, Yndisauki #5, Yndisauki #6, Yndisauki #7, Yndisauki #8, Yndisauki #9, Yndisauki #10
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.