Tónar og töfrar: Hinsegin kórinn og Fado Bicha
Háskólabíó 1. október, kl 20:30 RIFF býður á sérstaka tónleika þar sem hinseginleikanum er fagnað á einstakan hátt. Í sal 1 í Háskólabíói stíga á svið Hinsegin kór Reykjavíkur og portúgalska hljómsveitin Fado Bicha Fado Bicha er dúett frá Lissabon sem fer eigin leiðir við að endurskilgreina eina þekktustu og ástsælustu tónlistarhefð Portúgals, fado-söngva. Söngvarinn Lila Fadista og gítarleikarinn João Caçador ljá fado nýja rödd með því að tvinna saman hefð og samtíma og fjalla um sjálfsmynd, kyn og samfélagsbreytingar. Dúettinn stígur á svið ásamt Hinseginkór Reykjavíkur á einstökum viðburði þar sem íslensk kórhefð mætir portúgalskri þjóðlagatónlist. Hálftíma fyrir tónleikana, kl. 20:00, tekur portúgalska stórleikkonan Maria de Medeiros við Heiðursverðlaunum RIFF fyrir framúrskarandi listfengi. Miðahafar eru hjartanlega velkomnir á verðlaunaafhendinguna.
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.