Ást á prjónunum
Gertie býr með mömmu sinni og ömmu í yndislegum, litlum bæ nyrst í Skotlandi, þar sem fólkið er samheldið og náttúran ægifögur. Það er þó ekki ævintýrum fyrir að fara hjá Gertie. Hún hefur unnið í sömu kjörbúðinni síðan hún lauk skóla og félagslíf hennar snýst aðallega um prjónaklúbb skoðanaglaðra kvenna. Milli þess sem hún fitjar upp á prjónana kryddar Gertie hversdaginn með dagdraumum sem hún dvelur í meira en gott þykir. En skjótt skipast veður í lofti í skosku Hálöndunum. Líf Gertie tekur stakkaskiptum þegar Morag, flugstjóri hjá MacIntyre Air, birtist einn daginn í kjörbúðinni og býður henni starf hjá flugfélaginu. Fyrr en varir er Gertie komin með nýja vinnu, flutt að heiman og gamli draumaprinsinn Struan bliknar í samanburði við norska flugvélamógúlinn Calum Frost. En nýja lífinu fylgja nýjar áskoranir. Tekst Gertie að koma ofan úr skýjaborginni og sýna hvað í henni býr? Stundum er raunveruleikinn ævintýralegri en dagdraumar. Sjálfstætt framhald af Skrifað í skýin eftir skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan, en bækur hennar hafa selst í fimmtán milljónum eintaka og slegið í gegn hjá lesendum á Íslandi. Close Knit, Jenny Colgan, 2024 Helga Soffía Einarsdóttir þýddi, 2026 Kilja, 135 x 200 mm 384 blaðsíður
Variants (1)
- Default Title — 4200.00 ISK — In stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.