Obelink Columbia 6 Easy Air uppblásið tjald

Obelink Columbia 6 Easy Air uppblásið tjald

Brand: Obelink
SKU: MAR-197357
159992.00 ISK In stock Buy at Merchant

Obelink Columbia 6 Easy Air Obelink Columbia 6 Easy Air er rúmgott uppblásið fjölskyldutjald fyrir allt að 6 manns. Tjaldið hentar vel fyrir fjölskyldur sem vilja einfalda uppsetningu, gott svefnpláss og þægilega aðstöðu í fjölskyldufríum og lengri útilegum. Columbia 6 Easy Air er með tveimur 3 manna svefnrýmum sem hægt er að sameina í eitt stórt svefnrými með því að fjarlægja skilrúmið á milli þeirra. Forstofan er 420 x 220 cm og býður upp á gott pláss fyrir farangur, lítið borð og stóla. Fremst á tjaldinu er áfast skyggni sem myndar skjólgott anddyri fyrir framan innganginn. Það gerir þér kleift að hafa framhliðina opna, jafnvel í léttari rigningu, án þess að það rigni beint inn í tjaldið. Fram- og hliðarhurðir eru með möskvadúk sem hjálpar til við loftflæði og heldur skordýrum úti. Tjaldið er auðvelt í uppsetningu þökk sé uppblásnum súlum. Súlurnar þrjár eru pumpaðar upp hver fyrir sig með meðfylgjandi handpumpu og trefjaplastsúlan fremst á tjaldinu er einföld í uppsetningu. Áfastur botndúkur með upphækkuðum kanti allan hringinn hjálpar til við að halda vatni, drullu og skordýrum úti. Eiginleikar Uppblásið fjölskyldutjald fyrir allt að 6 manns Tvö 3 manna svefnrými Hægt að fjarlægja skilrúm og búa til eitt stórt svefnrými Rúmgóð forstofa fyrir farangur, lítið borð og stóla Áfast skyggni fremst sem myndar skjólgott anddyri Framhlið með möskvadúk fyrir betra loftflæði Hliðarhurð með möskvadúk Áfastur botndúkur með upphækkuðum kanti allan hringinn Góð loftræsting, meðal annars stór yfirbyggð loftun að aftan Hliðargluggi með moskítóneti í efri hluta Uppblásnar súlur fyrir fljótlega og þægilega uppsetningu Handpumpa fylgir með Tenging fyrir rafmagnssnúru Franskir rennilásar á uppblásnum súlum fyrir rafmagnssnúrur eða ljós Hentar vel fyrir fjölskyldufrí og ferðalög Tæknileg atriði Tegund tjalds: Uppblásið fjölskyldutjald Vörumerki: Obelink Fjöldi: 6 manna Svefnrými: 2 Inngangar: 2 Loftræstiop: 3 Myrkvuð svefnrými: Já Skordýranet: Já Vatnsþol: 3000 mm Hámarks loftþrýstingur: 8 PSI Uppsetningartími: ca. 25 mínútur Ytra lag: Polyester, 150 denier Innra tjald: Polyester Botndúkur: PE Súlur: Uppblásnar súlur og trefjaplastsúla fremst Mál: 560 x 410 cm Hæð: 215 cm Forstofa: 420 x 220 cm Svefnrými: 230 cm á lengd Flatarmál: 22,96 m² Þyngd: 27,5 kg Pakkastærð: 82 x 42 x 42 cm Litur: Grár Innifalið: Handpumpa, tjaldhælar, geymslupoki og tjaldstög

Variants (1)
  • Default Title — 159992.00 ISK — In stock

AI Readiness

Good foundation, but some important product data is still missing.

87%