Montessori White 90x200cm

Montessori White 90x200cm

Brand: Flexa
89900.00 ISK In stock Buy at Merchant

FLEXA WHITE Montessori rúmið er hannað til að styðja við sjálfstæði barnsins frá unga aldri. Með lágu sniði getur barnið auðveldlega klifrað sjálft upp í rúmið og farið fram úr, sem eykur öryggi, sjálfstraust og sjálfstæði í daglegu lífi. Rúmið sameinar fallega skandinavíska hönnun og hagnýta eiginleika. Einkennandi rimlahönnunin á öllum hliðum,gefur rúminu tímalaust útlit sem passar vel inn í hvaða barnaherbergi sem er. FLEXA WHITE er hannað til að fylgja barninu í mörg ár. Rúmið er hluti af sveigjanlegu WHITE kerfinu og er hægt að breyta síðar í millisvefnrúm eða koju með viðeigandi aukahlutum. Einnig er hægt að bæta við skúffum eða gestarúmi eftir því sem þarfir fjölskyldunnar breytast. Framleitt í Evrópu úr gegnheilum furuviði og MDF með FSC®-vottun og hannað í Danmörku með áherslu á gæði, öryggi og langan líftíma. Helstu eiginleikar Montessori-hönnun sem styður sjálfstæði barnsins. Lágt rúm sem auðvelt er fyrir börn að komast í og úr. Færanlegt öryggishlið fyrir aukið öryggi. Tímalaus skandinavísk hönnun með fallegum rimlum. Hluti af FLEXA WHITE húsgagnakerfinu. Hægt að breyta síðar í: millisvefnrúm koju Hægt að bæta við: rúmskúffum gestarúmi öðrum aukahlutum úr WHITE línunni. Hentar börnum frá 3 ára aldri. Þolir allt að 100 kg.

Variants (1)
  • Default Title — 89900.00 ISK — In stock

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

83%