Réttarsálfræði

Réttarsálfræði

Brand: Háskólaprent
9990.00 ISK In stock Buy at Merchant

Réttarsálfræði er fyrsta íslenska kennslubókin sem er sérstaklega skrifuð fyrir framhaldsskóla um þetta ört vaxandi fræðasvið. Bókin veitir heildstæða yfirsýn yfir hvernig sálfræðileg þekking er nýtt innan réttarkerfisins og hvernig hún getur stuðlað að betri skilningi á glæpum, afbrotum og mannlegri hegðun. Í bókinni er meðal annars fjallað um sögu réttarsálfræðinnar, rannsóknarsálfræði, vitnisburð, minni, falskar játningar, afbrotamörkun, geð- og taugaþroskaraskanir í réttarkerfinu, vinnu með þolendum og gerendum, siðferðileg álitamál, áhrif fjölmiðla og samfélagsmiðla, íslenska sem erlenda fræðinga og stöðu réttarsálfræðinnar á Íslandi. Fræðileg umfjöllun er tengd raunverulegum sakamálum, nýlegum rannsóknum og íslensku samhengi. Bókin er byggð upp sem kennslugagn með skýrum samantektum og QR-kóðum sem vísa á verkefnabanka og viðbótarefni, svo sem hlaðvörp, fyrirlestra, heimildamyndir, myndbönd og annað. Hún styður við gagnrýna hugsun, sjálfstæð vinnubrögð og umræðu um siðferðileg álitaefni og hentar jafnt til kennslu sem sjálfstæðs náms. Réttarsálfræði er ætluð nemendum, kennurum og öllum þeim sem vilja öðlast dýpri skilning á samspili sálfræði og réttarkerfisins. Bók þessi var styrkt af Þróunarsjóði námsgagna hjá Rannís.

Variants (1)
  • Default Title — 9990.00 ISK — In stock

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

72%