Jólahlaðborð 2026
UPPSELT – Jólahlaðborð Parkinsonsamtakanna 2026 🎄 Við bjóðum félagsfólki og aðstandendum að eiga saman notalega stund og njóta góðs matar í aðdraganda jólanna. Jólahlaðborð Parkinsonsamtakanna verður haldið fimmtudaginn 19. nóvember kl. 12:00 á veitingastaðnum Hjá Jóni, á hinu glæsilega Iceland Parliament hóteli við Austurvöll. Sjá staðsetningu á korti. Boðið verður upp á glæsilegt jólahlaðborð. Nánari dagskrá verður auglýst síðar. Verð: 8.500 kr. á mann. Takmarkaður fjöldi miða er í boði og við hvetjum ykkur til að tryggja ykkur miða sem fyrst. Miðar eru keyptir hér á síðunni eða á skrifstofu Parkinsonsamtakanna. Ekki þarf að koma með útprentaðan miða — nægir að sýna kvittun fyrir kaupunum við komu, til dæmis í símanum. Við hlökkum til að njóta jólastemningarinnar með ykkur!
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.