Sjöan - barnavesti

Sjöan - barnavesti

Brand: Litli prins
763.00 ISK In stock Buy at Merchant

Vestið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er bakstykkið prjónað fram og til baka að handvegi og svo hvor hluti framstykkis fyrir sig, þar til öll stykki eru sameinuð við handveg. Þaðan er prjónað í hring með mynstri. Kantar við handveg og háls eru prjónuð síðust. Í tvílitu mynsturprjóni er mikilvægt að ákveða hvor liturinn á að vera ríkjandi og hvor á að vera víkjandi, og halda böndunum alltaf eins yfir fingurinn. Ríkjandi litur liggur nær þér (innar á fingrinum) en víkjandi er fjær (framar á fingrinum). Í vestinu á myndinni var ég með ljósa litinn sem ríkjandi lit. STÆRÐIR 6-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára / 4 ára / 5 ára / 6 ára / 7 ára / 8-10 ára UMMÁL 55 / 60 / 65 / 71 / 71 / 76 / 76 / 82 / 87 cm GARN Tillaga 1: Fine Merino frá Gabo Wool (50 gr.= 105 mtr). Litur A (aðallitur): 150, 150, 200, 200, 200, 250, 250, 250, 300 gr. Litur B (mynsturlitur): 50, 50, 100, 100, 100, 100, 100, 100, 100 gr. Tillaga 2: My Time Merino frá Gabo Wool (50 gr.= 230 mtr) prjónað tvöfalt Litur A (aðallitur): 100, 150, 150, 200, 200, 200, 200, 250, 250 gr. Litur B (mynsturlitur): 50, 50,100, 100, 100, 100, 100, 100, 100 gr. Garnið frá Gabo Wool fæst hjá vetrargarn.is PRJÓNAR Hringprjónar 40 cm, # 3,5 og 4,0 PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI 22 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf) ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA Prjónamerki Hjálparband eða nælur Skæri, nál

Variants (1)
  • Default Title — 763.00 ISK — In stock

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

75%