MUGA 10 2026 - Medium

MUGA 10 2026 - Medium

Brand: Orbea
1004550.00 ISK In stock Buy at Merchant

Muga er virkilega flott fulldempað rafmagnsborgarhjól sem virkar einnig frábærlega í ævintýraferðir út fyrir malbikið. Hjólið kemur með kraftmiklum 100 NM Bosch mótor og er fáanlegt með annað hvort 600 WH batteríi fyrir þau sem vilja léttara hjól eða 750 WH batteríi fyrir þau sem vilja drífa lengra, einnig er hægt að fá auka 250 WH utanáliggjandi batterí fyrir enn meiri drægni. Hjólið kemur með 120 mm framdempara og 115 mm afturdempara sem hentar frábærlega bæði innanbæjar og fyrir allskonar slóða. Hjólið kemur í mullet útfærslu 29" gjörð að framan og 27,5" að aftan og kemur með dropper sætispípu til að gera ferðina niður krefjandi brekkur auðveldari. Muga kemur með því öllu helsta fyrir borgarhjólreiðar eins og bögglabera, bretti, standara og allskonar festipunktum fyrir aukahluti eins og innbyggðum lás, brúsa og fleira. Hjólið kemur með SP Connect símafestingu og USB-C hleðsluporti fyrir síma svo þú getir fylgt leið í símanum og verið tengd/ur umheiminum á meðan þú hjólar. Orbea er umhugað um öryggið þitt og því kemur hjólið með innbyggðum ljósum sem gera þig sýnilegan úr öllum áttum, einnig kemur ljóskastari að framan svo þú sjáir vel í myrkri, öflugar bremsur og falið geymsluhólf fyrir airtag til að finna hjólið ef því yrði stolið. Að lokum þá er hægt að fá hjólið með belti og sjálfskiptingu ef þú ert að leitast eftir hjóli með lágmarksviðhaldi og vilt ekki þurfa að hugsa út í að vera í réttum gír, en hjólið er einnig fáanlegt með hefðbundri keðju, og svo annað hvort rafmagnsgírskiptum eða hefðbundnum gírskiptum. Þetta er draumahjól fyrir þau sem vilja nýta sér rafmagnshjól til að komast á milli staða í stíl og skreppa af og til í ævintýraferðir upp í Heiðmörk. Til að sjá nánari upplýsingar um hjólið Skoða nánar

Specifications
Litur
Ivory White - Black (Gloss)
Stærð
M
Variants (1)
  • Ivory White - Black (Gloss) / M — 1004550.00 ISK — In stock

AI Readiness

Good foundation, but some important product data is still missing.

81%